HÚSASJÁ

Brekkubyggð 33

02-0105 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

97 m²

Stærð

1

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1980

Byggingarár

2993 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



240 dagar á sölu

sell

93.900.000 kr

964.066 kr/m²

Betri Stofan og Jason Kristinn fasteignasali í síma 7751515 kynna með stolti: Glæsileg, endurnýjuð 3-4 herb. sérhæð á einni hæð, með bílskúr og rúmgóðum palli. Eignin er samtals með 19,3 fm bílskúrnum, tæpir 100 fm. Mikið hefur verið endurnýjuð á undanförnum árum að innan sem utan.

Eignin skiptist í:

- Þrjú svefnherbergi. Á teikningu eru 2 svefnherbergi og þvottahús með glugga. Í dag er þvottahúsið nýtt sem svefnherbergi.

- Rúmgóða stofu og borðstofu, útgengi út í garð (fyrir aftan hús)

- Eldhús með innréttingu frá Kvikk og tækjum frá Eirvík (geta fylgt með skv. samkomulagi)

- Endurnýjað baðherbergi með gólfhita og innbyggðu sturtubúnaði. Fallegar flísar.

- Sérinngang fyrir framan hús

- Geymsluloft yfir forstofu og baðherbergi (ca. 10 fm)

- Leikloft/geymslu yfir barnaherbergi

- Bílskúr með hita, skráður 19,3 fm

Framkvæmdalisti síðustu ára:

2020 - Baðherbergi tekið í gegn- gólfhiti settur í - flísar frá Flísabúðinni, blöndunartæki sett inn í vegg f/sturtu og færsla á þvottavél/þurkara.

2021 - Bílskúr flotaður -  Burðasúla færð inn í vegg í samráði við burðaþols verkfræðing- teikning samþykkt í kjölfarinu

2022 - Gólfhiti settur í stofu, eldhús, forstofu og litla herbergið við forstofuna - skipt um ofna í svefnherbergjum- flotað

- Skipt um glugga á vesturhlið, svalahurð stækkuð og sett í samþykkta teikningu (var ósamþykkt)

- Hafist handa við að skipta um þaksperrur, borðaklæðningu, lofthæð tekin upp og settur öndunardúkur og bára lektuð upp allt í samráði við Verkfræðistofu Ívars Hauksonar ehf - teikningar liggja fyrir á vef Garðabæjar.

- Loft tekið niður og rafmagn dregið í og ljós tengd

- Eldhús frá Kvikk, tæki frá Eirvík (geta fylgt með eftir samkomulagi)

2024 - Skipt var um restina af gluggum og málað að utan  - Ca 90 fm pallur settur upp, minniháttar frágangur eftir. gert ráð fyrir rafmagni á pallinum eins og sést á myndum sem á eftir að klára (setja ljós og tengja).

Shelly snjallljósastýringar eru í íbúðinni.  Fyrir ofan baðherbergi og forstofu eru geymslupláss uppá c.a 10fm

Í barnaherberginu er leikloft- notað sem geymsla í dag.

Eignin stendur á rólegum og vinsælum stað í Garðabæ.

Pallurinn umlykur húsið að hluta og býður upp á frábært útivistarsvæði í góðu skjóli. Hentar einstaklega vel fjölskyldum sem vilja nýta sér gott geymslupláss og vel skipulagða eign með nútímalegri endurnýjun.

Sjón er sögu ríkari!

Hafðu samband við Jason Kristinn í síma 775 1515 eða á jason@betristofan.is löggiltan fasteignasala til að bóka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Brekkubyggð 33

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu