Brekkubyggð 22
01-0101 · 210 Garðabæ



101 dagar á sölu
154.900.000 kr
903.734 kr/m²
**Eignin verður ekki sýnd fyrr en í opnu húsi þann 5 mars kl 17.00-17.30**Fasteignasalan TORG kynnir: Fallegt og bjart raðhús með bílskúr á einni hæð á þessum eftirsótta stað í Garðabæ, Brekkubyggð 22. Um er að ræða eign sem er skráð skv fmr 171,4fm og þar af er bílskúr skráður 31,4 að auki er sólstofa með kamínu um 23fm sem er ekki inni í skráðum fermetrum og eignin því um 194fm að stærð. Fyrir um 3 árum var skipt um járn á þaki, 2025 var hús og gluggar málað að utan og eldhúsið uppgert ca 2005. Aðkoman að eigninni er falleg með hellulögðu bílaplani og garðurinn er gróinn og fallegur með timburveröndum og skjólveggjum. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.
Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fjórföldum fataskáp.
Þvottahús: Innaf forstofu er rúmgott og vel útbúið þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu sem er ca 7 ára gömul, vaski og opnanlegum glugga. Innaf þvottahúsinu er búr eða geymsla einnig með innréttingu sem var sett upp fyrir ca 7 árum, flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Eldhús: Eldhúsið er með fallegri sérsmíðaðri eikarinnréttingu með góðu skápaplássi. Rúmgóður borðkrókur er við glugga og fallegt útsýni er frá eldhúsinu. Spanhelluborð með háf yfir og tengi er fyrir uppþvottavél. Flísar eru á gólfi og á milli efri og neðri skápa og tveir gluggar eru í eldhúsinu.
Stofa: Stofan er mjög rúmgóð og björt og rúmar einnig borðstofu. Parket er á gólfi og stórir gluggar. Sjónvarpshol: Samliggjandi stofum er gott sjónvarpshol með útgengi út verönd.
Sólstofa: Inn af stofu er ca 23fm sólstofa sem er góð og falleg viðbót við húsið, flísar eru á gólfi og bæði gólfhiti og ofn. Kamína er í sólstofunni og útgengt út í garð um rennihurð. Nýlega var skipt var um hurð og glugga á Sólstofunni sem snýr að timburverönd. Einnig endurnýjuð timburgrind sem er undir Steni-klæðningu á sökkli fyrir Sólstofu.
Baðherbergi: Baðherbergið er bæði með baðkari og sturtu. Ljós innrétting er á baðherberginu ásamt upphengdu salerni og opnanlegum glugga.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru 4, öll með parketi á gólfi og í hjónaherbergi eru rúmgóðir fataskápar og innbyggður fataskápur er í einu barnaherbergjanna.
Bílskúr: Bílskúrinn er skráður 31,4 fm. Tvær göngudyr eu á skúrnum, rafmagnshurðaopnari, heitt og kalt vatn og búið er að stúka af vinnuherbergi með glugga í skúrnum.
Garður og aðkoma: Garðurinn er mjög skjólgóður og fallegur með timburveröndum og í garði er timburskúr sem er tilvalinn undir t.d garðhúsgögn. Bílaplan og gangstéttir við húsið eru með hitaílögnum að hluta og aðkoman falleg.
Niðurlag: þetta er virkilega bjart, rúmgott og gott fjölskylduhús með bílskúr og 4 svefnherbergjum. Staðsetning eignarinnar er afar góð með fallegu útsýni á eftirsóknaverðum stað við Brekkubyggð í Garðabæ þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, fjölbrautarskóla, íþróttasvæði auk verslunar, þjónustu og veitingastaði. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna











































