Boðahlein 13
01-0101 · 210 Garðabæ



15 dagar á sölu
73.900.000 kr
904.529 kr/m²
Skemmtilegt raðhús á einni hæð með bílskúr á þessum eftirsótta stað við Boðahlein 13 í Garðabæ, ætlað 60 ára og eldri.
Eignin skiptist þannig að íbúðin er 59,7 fm og bílskúr 22,0 fm alls 81,7 fm skv Fasteignaskrá.
Eignin er laus við kaupsamning!
Nánari lýsing:
Forstofa: Með fataskápum og flísum á gólfi.
Þvottahús: Er rúmgott með dúk á gólfi, tengi fyrir þvottavél. Opnanlegur gluggi og hillur.
Eldhús með hvítri innréttingu, stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Eldhúskrókur með gluggum og skemmtilegu útsýni.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi, útgengt úr á sérafnotaflöt sem snýr út í hraunið. Aukin lofthæð er í stofu og holi sem setur sérstakan blæ á rýmið.
Svefnherbergi með góðum skápum og parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtu, flísar í hólf og gólf, og útloftun.
Bílskúr er í bílskúrslengju með steyptu gólfi og rafmagnopnara. Gluggar í enda bílskúrs.
Lóðin er gróin og frágengin með hellum fyrir framan hús.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í þjónustukjarna við Hrafnistu og stendur íbúum til boða að fá neyðarbjöllu þaðan auk aðgangs að hinni ýmislegustu þjónustu þar svo sem
hárgreiðslu, snyristofu, sundlaug, tækjasal, sjúkraþjálfara og fleira
Gott útsýni að Esju og víðar. Stutt í skemmtilegar gönguleiðir og náttúru.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


















