HÚSASJÁ

Aratún 14

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

196 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1965

Byggingarár

741 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



2 dagar á sölu

sell

180.000.000 kr

916.964 kr/m²

Borg fasteignasala kynnir til sölu: Glæsilegt einbýlishús að Aratúni 14 í Garðabæ. Fjölskylduhús á einni hæð, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, glæsileg borðstofa, stofa og eldhús, ekki má gleyma sólstofu og bílskúr. Lóðin er sælureitur með miklum trjágróðri, heitum potti, útisturtu og saunu. Mjög góð staðsetning, göngufæri í leik- og grunnskóla, íþróttir, útivist, verlsanir og sundlaugina vinsælu í Garðabæ.

Bókið einkaskoðun - Gunnlaugur@fastborg.is

Samkvæmt skráningu HMS er húsið skráð 196,3 m2

Aratún 14, 210 Garðabær er glæsilegt einbýlishús á einni hæð, sannkallað fjölskylduhús. Afar vel skipulagt hús, þar sem falleg hönnun, utan sem innan og staðsetning fer saman. Húsið er fallegt frá götunni, það stendur innst í horninu á Aratúninu. Reisulegt með fallegu hallandi þaki, hækkandi línum til endanna. Gróðurinn er mikill í þessum hluta Garðabæjar og skjólið eftir því.

Hentar einstaklega vel fjölskyldum sem leita að framtíðarheimili á rólegum stað.

Segja má að húsið skiptist í tvö aðalrými, svefnrýmin annars vegar og samverurými hinsvegar.

Komið er inn í anddyri sem er miðja hússins, á vinstri hönd er þvottahús, geymsla og minna baðherbergið. Beint af augum er svefngangurinn, þar er baðherbergi, þrjú barnaherbergi og hjónaherbergi inn í enda. Sólstofa er fyrir miðju og tengir húsið og garðinn skemmtilega saman. Eldhús, borðstofa og stofa eru í sérlega fallegu rými, björtu og hlýlegu.

Loftið þar er einstakt í “seventíes anda” enda sérhannað á sínum tíma af Pétri B. Lúterssyni arkitekt og húsgagnahönnuði.

Eldhús, borðstofa og stofa eru einkar hlýleg og falleg rými. Þar eru stórir gluggar sem gera húsið bjart án þess að tapa hlýleikanum.

Borðstofan og stofan “sérhannaður seventís skúltúr” í loftinu, sem gerir þessi rými einstök. Stórir gluggar í suður og vestur.

Eldhúsið er lokað af frá borðstofu. Þar er falleg innrétting með hnotu áferð, stál á eldhúsbekkjum, háfur og stór Smeg gaseldavél, falleg gluggasetning.

Baðherbergið er bjart og fallegt með walk’in sturtu, upphengt salerni og innréttingu. Hvítar marmara flísar á veggjum og ljósar flísar á gólfi.

Svefnherbergin eru fjögur, þrjú barnaherbergi og hjónaherbergi.

Hluti bílskúrssins hefur verið innréttaður sem “unglingaíbúð”, þar er baðherbergi og eldhúsaðstaða.

Þvotthús og gestasnyrting, þar er sturta og bakdyrainngangur og geymsla.

Bílskúrinn er sérstæður og hefur verið skipt upp í herbergi/íbúð og geymslu.

Hiti er í bílaplaninu og er það rúmgott fyrir amk., 3 bíla.

Gólfefni: Á megin hluta hússins, stofu, borðstofu, holi og svefngangi er mjög fallegt upprunalegt endaparket. Kókosteppi eru í herbergjum. Flísar eru á eldhúsi, sólstofu og á votrýmum.

Lóð og umhverfi: Garðurinn er sælureitur með fallegum pöllum, miklum gróðri, bæði trjágróðri og plöntum. Heitur pottur og nýlega var bætt við útisturtu og saunu, það er því auðvelt að gusa sig hér. Garðurinn er afgirtur.

Nokkur atriði sem vert er að nefna:2000 Frárennslilagnir lagfærðar af fyrri eigendum2007 Eldhús endurnýjað, ný innrétting, tæki og gólfefni2013 viðbygging/sólstofa, þar er kamína og stórar rennihurðar út í garð2020 Baðherbergi endurnýjað“Unglinga" íbúð í bílskúr - með sturtu, klósetti og lítið eldhús.Pétur B. Lútersson arkitekt og húsgagna hönnuður, hannaði húsið að innan á sínum tíma     Þak hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina.Gluggar á austurhlið (ríkjandi vindátt) hafa verið endurnýjaðir.Gólfhiti í viðbyggingu/sólstofu og á aðalbaðiherbergi2025 Sauna og úti-sturta2026 Ný rafmagnstafla (3 fasa) og hleðslustöð í innkeyrslu.  Hitalögn í innkeyrslu og við aðalinngang.

Sérstaklega fallegt einbýlishús í rólegu grónu hverf, þar sem stutt er í leik- og grunnskóla og alla þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir

Gunnlaugur Þráinsson Lögg. fasteignasali, í síma 844 6447, tölvupóstur gunnlaugur@fastborg.is.

Victor Levi R. Ferrua, Löggiltur fasteignasali, í síma 868 2222, tölvupóstur victor@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.

2.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3.Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Aratún 14

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25