HÚSASJÁ

Aratún 13

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

168 m²

Stærð

4

Herbergi

2

Baðherbergi

1964

Byggingarár

638 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



143 dagar á sölu

sell

145.000.000 kr

863.609 kr/m²

Eignatorg kynnir: Opið hús Aratúni 13 þriðjudaginn 24. febrúar milli kl. 18:00 og 18:30.

Fallegt, bjart, skemmtilega skipulagt og vel viðhaldið einbýlishús á einni hæð með bílskúr á sérlega rólegum stað. Nýleg steinlögn með hitalögnum undir er fyrir framan bílskúr og inngang inn í húsið. Þakjárn var endurnýjað fyrir ca 10 - 15 árum. Frárennsli, hitagrind, neysluvatnslagnir, ofnalagnir, ofnar og frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar á undanförnum árum.

Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúðarhlutinn 131,6 fm. og bílskúrinn 36,3 fm. Samtals er eignin því skráð 167,9 fm.

Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskáp. Gestasnyrting með flísum á gólfi og innréttingu. Þvottahús með máluðu gólfi, vinnuborði, skolvaski, sturtu og gluggum á tvo vegu. Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi, gluggum á tvo vegu og hurð út á vestur sólpall. Eldhús með linoleum partketi á gólfi, upprunalegri innréttingu, borðkrók og gluggum. Búr með skápum og hillum. Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi. Herbergi með parketi á gólfi og skáp. Herbergi með parketi á gólfi og skáp. Hjónaherbergi með dúk á gólfi og skápum. Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, innréttingu, baðkari og glugga.

Bílskúrinn er með rafdrifnum opnara á innkeyrsluhurð, tveimur gönguhurðum, rafmagni, hita og gluggum.

Búr sem er inn af eldhúsi mætti hæglega gera að þvottahúsi og breyta þvottahúsinu, sem notað er í dag, í rúmgott svefnherbergi með gluggum á tvo vegu.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Kort af Aratún 13

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu