HÚSASJÁ

Miðbraut 25A

01-0101 · 170 Seltjarnarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
43 myndir

130 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1978

Byggingarár

1054 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Hleðslustöð

Þvottahús



18 dagar á sölu

sell

137.900.000 kr

1.006.569 kr/m²

Landmark fasteignamiðlun kynnir:

Virkilega fallegt og vel skipulagt 137 fm. parhús á einni hæð á góðum stað á Seltjarnarnesi.  Bílskúrsréttur fylgir eigninni. Í þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu er gert ráð fyrir og teiknaður tæplega 33 fm. bílskúr. Eignin hefur fengið gott viðhald og ýmislegt hefur verið endurnýjað.  Skipt var um járn á þaki (alusink) og þakrennur fyrir nokkrum árum og loftun aukin. Eldhús var endurnýjað árið 2019. Skipt var um varmaskipti fyrir neysluvatn fyrir tveimur árum og neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar. Ný rafmagnstafla og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Grindverk reist við hlið húss og í bakgarði sl. tvö sumur. Nýlegar screen- og myrkvunargardínur eru fyrir flestum gluggum bara svo eitthvað sé nefnt.

Loftplata er steypt og því auðvelt að fylgjast með ástandi þaks. Á loftinu er stórt kalt geymsluris.  Mjög fallegur garður er fyrir framan og aftan hús með fjölbreyttum gróðri, runnum og fjölæringum. Til er teikning af blómaskála. Niðurfallslagnir vegna hans eru fyrir hendi. Stétt og steyptur pallur er fyrir framan hús og timburverandir eru í bakgarði. Sólar nýtur mjög vel umhverfis húsið, frá morgni fram á kvöld. Á baklóð er  7 fm. óskráður upphitaður og einangraður geymsluskúr sem er skeyttur við aðalhúsið.  Bílastæði eru inni á lóð fyrir framan hús fyrir 2 bíla og jafnan er nóg af stæðum í götunni. Í húsinu eru 3 svefnherbergi og 2 stofur. Léttir veggir eru víðast hvar ef að vilji er til að breyta skipulagi húss. Þrír útgangar.

Nánari upplýsingar veita:

Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 / th@landmark.is

Sveinn Eyland lögg. fast. s. 6 900 820 / sveinn@landmark.is

Nánari lýsing:

Forstofa:  Flísar á gólfi, fataskápur.

Miðrými og gangur:  Parket á gólfi.

Stofa / borðstofa:  Rúmgóðar og bjartar með stórum gluggum á tvo vegu.  Parket og flísar á gólfum.  Gólfhiti í gólfi í borðstofu.

Eldhús:  Ágæt innrétting, vönduð eldunartæki og örbylgjuofn. Flísar á gólfi, gólfhiti.

Baðherbergi:  Endurnýjað að hluta fyrir nokkrum árum.  Flísar eru á gólfi og hluta af veggjum.  Frístandandi baðkar og sturtuklefi.  Góð innrétting í kringum handlaug. Handklæðaofn og opnanlegur gluggi.

Innri gangur:  Tveir góðir fataskápar og fín heimaskrifstofa.  Parket á gólfi.

Svefnherbergi I: Rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergi II: Notað í dag sem sjónvarpsherbergi, parket á gólfi.

Svefnherbergi III: Afar rúmgott, flotað og lakkað gólf og útgengt á verönd og í bakgarð.

Þvottahús:  Málað gólf og góð aðstaða í vinnuhæð fyrir þvottavél og þurrkara. Góðir skápar og skolvaskur, Útgengt þaðan í innkeyrslu.

Það er eftirsóknarvert að búa á Seltjarnarnesinu. Þar er góður grunnskóli, gróskumikið íþróttastarf í Gróttu, sundlaug, tónlistarskóli, golfvöllur og falleg útivistarsvæði bara svo eitthvað sé nefnt.

Þetta er sérlega praktísk og góð eign á eftirsóttum stað.

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Miðbraut 25A

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð