HÚSASJÁ

Skólabraut 5

01-0310 · 170 Seltjarnarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

70 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1982

Byggingarár

6400 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla



297 dagar á sölu

sell

68.500.000 kr

985.612 kr/m²

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir í einkasölu:

Falleg og rúmgóð 2ja herbergja íbúð með stórum suðvestur svölum í góðu lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri við Skólabraut á Seltjarnarnesi

Íbúðin er laus til afhendingar strax.

Bókið skoðun hjá Ingibjörgu Þórðardóttur löggiltum fasteignasala í síma 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is

Lýsing eignar:

Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.

Setustofa: Rúmgóð stofa með parketi á gólfi, útgengt á stórar svalir sem snúa í suðvestur með fallegu útsýni yfir Reykjavík, Reykjanesskaga og Keili.

Eldhús: Hvít innrétting með góðu skápaplássi, flísalagt á milli efri og skápa, parket á gólfi,

Svefnherbergi: Bjart og rúmgott herbergi, parket á gólfi, innbyggðir fataskápar.

Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, veggskápur, sturtuklefi.

Geymsla: lítil geymsla innan íbúðar, við inngang.

Á hæðinni fylgir íbúðinni einnig sérgeymsla þar sem hefur verið tengt fyrir þvottavél.

Lyfta er í húsinu og bjartir gangar með setkrókum.

Í húsinu er þjónustukjarni og miðstöð tómstundastarfs eldri borgara á Seltjarnarnesi þar sem er fjölbreytt dagskrá og tómstundastarf. Í matsal er hægt er að fá heitan mat í hádeginu og þar koma íbúar saman daglega í kaffispjall.

Húsvörður starfar í húsinu og aðrir starfsmenn sem veita íbúum stuðningsþjónustu. Hægt er að fá aðstoð við þvott og böðun og fá hárgreiðslu og fótsnyrtingu. Sundlaug Seljarnarness og heilsugæsla eru í stuttu göngufæri sem og Eiðistorg. Í næsta nágrenni er Golfklúbbur Seltjarnarness og náttúruparadís Gróttu.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu ingibjorg@hibyli.is

Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is

Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Kort af Skólabraut 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu