HÚSASJÁ

Skólabraut 3

01-0208 · 170 Seltjarnarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

79 m²

Stærð

1

Herbergi

1982

Byggingarár

6400 m²

Lóð

Geymsla



115 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

881.463 kr/m²

Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali kynna bjarta og rúmgóða 79,3 fm tveggja herbergja íbúð á 2.hæð (1.hæð Skólabrautarmegin) við Skólabraut 3 á Seltjarnarnesi fyrir 65 ára og eldri. Þjónustukjarni er á jarðhæðinni þar sem rekið er fjölbreytt félagsstarf. Íbúðin var öll endurnýjuð fyrir átta árum eftir tillögum frá Rut Káradóttur innanhúsarkitekt.

Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.is.

Eignin er skráð 79,3 fm hjá HMS og er geymslan 4,8 fm þar af.

Nánari lýsing eignar:

Komið inn á parketlagt anddyri með fataskáp.

Eldhús er opið við stofu, með góðri innréttingu .

Stofan er björt og er útgengt á hellulagt svæði fyrir utan húsið.

Svefnherbergið er með góðu skápaplássi.

Baðherbergi er flísalagt með baðinnréttingu, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Ljóst eikarparket er á öllum gólfum nema baðherbergi en þar eru flísar.

Sér geymsla íbúðarinnar er á hæðinni.

Verið að klára utanhúsviðgerðir á Skólabraut 3-5 sem felast í að endurnýja þak, þakkant, rennur, glugga, múrviðgerðir og málun og hafa núverandi eigendur greitt þann kostnað.

Þjónustukjarni er á jarðhæðinni. Þar er rekið fjölbreytt félagsstarf og margvísleg tómstundastörf í boði eins og t.d. handavinna, útskurður, bókband, leirlist og fleira. Þá eru spilakvöld haldin, bingó, billiard, pútt og fleira. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu ásamt morgunkaffi. Einnig er hægt að fara í hárgreiðslu og fótsnyrtingu. Húsvörður er starfandi í húsinu. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og heilsugæslu, sundlaug, World class, bókasafn og Hagkaup á Eiðistorgi.

Eignin er laus við kaupsamning.

Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Skólabraut 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu