HÚSASJÁ

Lambastaðabraut 4

01-0101 · 170 Seltjarnarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

216 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1940

Byggingarár

950 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Þvottahús

Auka íbúð



65 dagar á sölu

sell

209.900.000 kr

969.963 kr/m²

Borg fasteignasala kynnir til sölu: Glæsilegt 7 herbergja 216 m2 einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara,  með bílskúr sem stendur á stórri eignarlóð við Lambastaðabraut 4, 170 Seltjarnarnes. Sjávarútsýni og auka íbúð í kjallara.

Nánar um húsið: Lambastaðabraut 4 er tveggja hæða einbýlishús úr timbri með steyptum kjallara og samliggjandi bílskúr. Góð aðkoma er að húsinu sem er við rólega einstefnugötu á suðurströnd Seltjarnarness. Húsið stendur á stórri eignarlóð með sjávarútsýni.

Skipulag:

Á fyrstu hæð er komið er inn í anddyri með flísum á gólfi og nýlegum fataskáp. Frá anddyri er komið inn í hol þaðan sem taka við bjartar og fallegar samliggjandi stofa og borðstofa með fallegum viðarfjölum á gólfum. Frá stofunni er gengið út á góða timburverönd með útsýni til suðvesturs og sjávar. Frá borðstofu er opið inn í eldhús sem sem var hannað í anda hússins af Hugrúnu Þorsteinsdóttur arkitekt, falleg vönduð nýleg innréttingu og vönduð tæki, flísar á vegg, kvarts borðplötur. Inn af holi er dagstofa/herbergi. Frá holinu er gengið upp á aðra hæð hússins.

Á annarri hæð eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Fallegar viðarfjalir eru á gólfum hæðarinnar að undanskildu baðherberginu. Hjónaherbergið er með nýlegum fataskápum. Stærra barnaherbergið er einnig með fataskáp, í því er tvískipt svalahurð. Baðherbergið er með flísum á gólfi og frístandandi baðkari, innrétting með skáp fyrir neðan handlaug og spegill með lýsingu fyrir ofan, innfelldir skápar undir súð og handklæðaofn. Rúmgott og einangrað geymsluris með niðurdregnum stiga er yfir annarri hæð hússins.

Í steyptum kjallara hússins er íbúð með sérinngangi, einnig er hægt að ganga niður í íbúðina um stiga frá fyrstu hæð. Baðherbergið er með flísum á gólfi, upphengt salerni með innbyggðum kassa,  “walk in“ sturta, skápur neðan handlaugar og handklæðaofn. Eldhús/stofa og herbergi eru með parketi á gólfi, í eldhúsinu er vönduð innrétting neðan borðplötu. Í kjallara er einnig þvottahús.   Nýlegt harðparket.

Bílskúrinn er 33,3 m2 að stærð, með epoxy gólfefni og rafdrifnum bílskúrshurðaopnara. Góð lofthæð er í bílskúr.

Annað: Innfelld lýsing er í stétt umhverfis húsið. Vegleg grasi vaxin lóð sem á eru tvær timburverandir, önnur við húsið og hin stendur við fánastöng fjær húsinu. Eignin ber með sér að hafa fengið gott viðhald. Húsið var málað árið 2021 og gluggar voru yfirfarnir og skipt um gler og pósta eftir þörfum, einnig var þak yfirfarið. Íbúð í kjallara var endurnýjuð árið 2017, skipt var um alla glugga í kjallara, lagnir, einangrun og dren. Einnig er nýlega búið að skipta um jarðveg og gólfplötu í kjallara.

Nánari upplýsingar veita:

Úlfar Þór Davíðsson í síma 788-9030 og netfang ulfar@fastborg.is

Börkur Hrafnsson í síma 892-4944 og netfang borkur@fastborg.is

fastborg.is/​​​

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Vill BORG fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8/0,4 % af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Kort af Lambastaðabraut 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu