HÚSASJÁ

Bakkavör 7

01-0101 · 170 Seltjarnarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

172 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1972

Byggingarár

872 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Þvottahús



7 dagar á sölu

sell

152.000.000 kr

879.121 kr/m²

Opið hús mánudaginn 9. mars frá kl 16:45 til 17:30 - Bakkavör 7, 170 Seltjarnarnes - eignarhluti 0101

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Falleg, björt og mjög vel skipulögð neðri hæð með sérinngangi ásamt bílskúr í tvíbýlishúsi á mjög eftirsóttum stað við Bakkavör á Seltjarnarnesi.

Eignin er samtals 172,9 fm (þar af hæðin sjálf 143,3 fm bílskúr 29,6 fm). Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni.

Lýsing eignar:

Forstofa: Flísar á gólfi. Þvottahús: Á vinstri hönd við forstofu er gengið inn í þvottahús hæðarinnar, vinnuborð, gluggi. Í þvottahúsinu er jafnramt inntaksgrind hússins.

Eldhús: Ljós viðarinnrétting, gott skápa og vinnupláss, korkur á gólfi, gluggar á tveimur hliðum. Úr eldhúsi er einnig unnt að ganga úr hinni áttinni inn í þvottahús íbúðarinnar.

Setustofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum, parket á gólfi, fallegur arinn, útgengt á stórar svalir sem snúa í suðvestur.

Borðstofa: Framan við eldhús, parket á gólfi, opin við stofu.

Í svefnálmu eru fjögur svefnherbergi, baðherbergi og fataskápar eru á ganginum framan við herbergin.

Herbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi, fataskápar, útgengi á svalir íbúðarinnar.

Þrjú góð barnaherbergi með parketi á gólfum, fataskápar í einu herbergjanna.

Baðherbergi: Alveg endurnýjað 2025 og neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Flísar á veggjum og gólfi, baðkar með flísalagðri hlið, flísalögð sturta með glerhlið og glerhurð sem gengið er slétt inní, ljós eikarinnrétting með góðu skápaplássi og veggskápur, quartzborðplata á innréttingu, upphengt salerni, handklæðaofn, gluggi.

Bílskúr: Eigninni fylgir bílskúrinn fjær húsinu og innkeyrslan þar fyrir framan. Skúrinn er skráður 29,6 fm og er með hita, rafmagni og rennandi vatni. Gluggi er innst í skúrnum.

Búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíla við bílskúrinn.

Afar falleg og vel staðsett eign á Seltjarnarnesi - örstutt í skóla, íþróttastarf og tómstundir.

Fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði í næsta nágrenni - og einnig er stutt í Golfklúbb Ness.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Kort af Bakkavör 7

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð