Austurströnd 6
01-0503 · 170 Seltjarnarnesi



16 dagar á sölu
61.700.000 kr
1.107.720 kr/m²
Hrafnkell Pálmi LGF. kynnir þessa fallegu og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð og henni fylgir sér bílastæði í bílageymslu.
Eignin er á þessum eftirsótta stað við Austurströnd 6 Seltjarnarnesi. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð á smekklegan máta.
Mjög flott sjávarútsýni í átt að Esjunni frá svefnherbergi, stofu og svölum.
Góð staðsetning nálægt, leikskóla og grunnskóla. Eiðistorg ásamt sundlaug Seltjarnarnes og World Class allt í göngufæri.
Húsið var sprunguviðgert og málað 2021. Þá var einnig skipt út gluggum á austuhlið hússins og sameign.
Nánari upplýsingar og bóka skoðun:
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.
Nánari lýsing:
Anddyrið er opið inn í stofu og möguleiki á opnu fatahengi.
Eldhúsið er með nýlegri innréttingu með miklu skápaplássi og góðri eldhúseyju. Nýlegur ofn og helluborð. Innbyggður ísskápur og frystir. Eldhúsið er opið inn í stofu og parket á gólfum.
Stofan er opin og rúmgóð með gluggum til norðurs og útgengi svalirnar með fallegu útsýni.
Baðherbergið snyrtilegt með flísum á gólfi og baðkar með sturtuaðstöðu. Góður vaskaskápur og speglaskápur.
Svefnherbergið er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskápum. Fallegt útsýni til norðurs.
Þvottahúsið er sameiginlegt og er á hæðinni.
Sér geymsla 4,9fm. ásamt hjóla- og vagnageymslu í sameign.
Sér merkt stæði í bílgeymslu með sér fastanúmeri. Merkt 0247 og skráð stærð bílastæðis er 23,8 fm og er ekki inn í birtum fermetrum íbúðarinnar.
Íbúð merkt 503 ásamt bílastæði í bílageymslu merkt 03-0247 og er á sér fastanúmeri 222-0102.
Gengið inn í húsið frá Nesvegi. Við Austurströnd 6 eru 18 íbúðir. Hlutfallstala í húsi er 3,09% og lóð 1,08%
Endurnýjun:
Íbúðin var tekin í gegn árið 2025. Öll gólfefni og hurðar endurnýjað. Allt rafmagn endurnýjað í töflu, rofar og tenglar. Eldhúsið með innbyggðum heimilistækjum, ísskáp, uppþvottavél, ofn og helluborð. Á baðherbergið eru nýjar innréttingar og gólfefni.
Heildarhúsið var tekið í gegn 2021. Farið yfir ytra byrði, þak, rafmagn, gluggum skipt út sem þurfti.
Austurströnd 6, 170 Seltjarnarnes, nánar tiltekið eign merkt 05-03, fastanúmer 206-6900 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Austurströnd 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-6900, birt stærð 55.7 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

















