HÚSASJÁ

Vogatunga 27A

01-0201 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
39 myndir

123 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1987

Byggingarár

231 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Þvottahús



154 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

691.932 kr/m²

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna fallega tveggja herbergja 112,8 fm íbúð með bílskúr á efri hæð í tvíbýli við Vogatungu 27 í suðurhlíðum Kópavogs. Stórfenglegt útsýni er úr íbúðinni til suðurs og vesturs. Þessi staðsetning er afar vinsæl og sjaldgæft að íbúðir á þessum stað komi í sölu, en gatan er fyrir 60 ára og eldri.

Íbúðin er skráð 122,7 fm hjá HMS og er bílskúrinn 25,3 fm þar af.

Bóki skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020  eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is.

Nánari lýsing eignar:

Forstofan er með fataskáp og flísum á gólfi.

Hol er rúmgott með parketi á gólfi.

Svefnherbergið er rúmgott með fataskáp og glugga sem snýr í suður, parket á gólfi. Út af herbergi er björt og rúmgóð sólstofa með miklu útsýni til suðurs.

Stofan/borðstofa er björt  og afar rúmgóð með gluggum í suður og miklu útsýni, parket á gólfi.

Eldhús er með viðarinnréttingu og er opið að hluta út í holið. Eldhúsið er með glugga út í bakgarð. Flísar á gólfi.

Baðherbergið er stórt og rúmgott, flísalagt með sturtuklefa.

Þvottahús og búr er út af eldhúsinu og útgengt út úr því út í garðinn.

Bílskúrinn er stór og rúmgóður með rafmagnsopnara.

Hér er gott tækifæri á að eignast fallega eign á besta stað í suðurhlíðum Kópavogs, með miklu útsýni þaðan sem stutt er í alla þjónustu og eru margar fallegar gönguleiðir um nágrennið og stutt í Kópavogsdalinn. Umhverfið er mjög friðsælt og gestabílastæði eru á móts við húsið. Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020, eða með tölvupósti á netfangið hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Vogatunga 27A

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð