HÚSASJÁ

Hafnarbraut 12C

01-0107 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

105 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

7931 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



35 dagar á sölu

sell

89.900.000 kr

852.941 kr/m²

Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Hafnarbraut 12, Íbúð 01.0107, Fastanúmer 206-5913., 200 Kópavogur

Falleg og rúmgóð 105,4 m² íbúð á 1 hæð í fjölbýli við Hafnarbraut 12C – íbúð 107.

Eignin telur  95,4 fm + geymsla 10,0 fm samtal 105,4fm. Eigninni tilheyrir 2 x sérafnotafletir 14,1 fm og 11,5 fm, hlutfallsleg réttindi í sameign matshlutans, lóð og sameign sumra Y1.

Stæði í bílageymslu merkt N40 fylgir með íbúðinni.

Eignin er björt og rúmgóð með góðum gluggum sem hleypa inn mikilli birtu og  með verandir beggja megin. Rýmið nýtist vel og er auðvelt að innrétta á fjölbreyttan hátt. Um er að ræða eign sem hentar vel fyrir þá sem vilja þægilega íbúð á góðum stað.

Íbúðin er vel skipulögð og hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldur, pör eða þá sem vilja þægilegt og gott rými á hentugum stað.

Nánari lýsing

Forstofa / inngangur

Stofa og borðstofa í opnu og björtu rými

Eldhús með góðu vinnu- og skápaplássi

Svefnherbergi (fjöldi skv. nánari upplýsingum)

Baðherbergi með  walk in sturtu

Geymslur / þvottaaðstaða.

Íbúðin sem er á 1. hæð og býður upp á gott flæði í rýmum, bjarta stofu og góð svefnherbergi. Eignin er í fjölbýli þar sem stutt er í helstu þjónustu og daglegt líf.

Nánari upplýsingar veita:

Hrönn Ingólfsdóttir

Löggiltur fasteigna- og skipasali

Símanúmer 692 3344

hronn@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:

Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:

Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

Kort af Hafnarbraut 12C

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð