HÚSASJÁ

Vallargerði 2

01-0201 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

84 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1955

Byggingarár

832 m²

Lóð

Garður



1 dagar á sölu

sell

73.500.000 kr

871.886 kr/m²

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Mjög vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi.

- Fasteignamat 74.600.000 kr.

- Sér bílastæði (möguleiki að setja upp hleðslustöð)

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3D

Nánari lýsing:

Gengið er inn um sameiginlegan inngang. Frá anddyrinu er stigi upp á efri hæð.

Holið er flísalagt með forstofuskáp.

Stofan er rúmgóð með stórum gluggum sem vísa í suður- og austurátt.

Svalir snúa í suðurátt. Útgengt er á þær frá stofunni.

Borðstofan var sér herbergi áður og er auðvelt að gera herbergi aftur þar.

Eldhúsið er með hvítri innréttingu, stæði fyrir uppþvottavél og gashelluborði.

Hjónaherbergið er með stórum gluggum sem vísa í suður- og vesturátt. Parket á gólfi.

Barnaherbergið er með parket á gólfi, innbyggðum fataskáp og súðargeymslu.

Baðherbergið er flísalagt með sturtuklefa, upphengdu klósetti, rúmgóðri innréttingu sem er með pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi fyrir loftun.

Stórt geymsluloft er yfir íbúðinni.

Framkvæmdalisti undanfarin ár:

- Húsið málað og múrviðgert 2019

· Gólf brotið upp og flotað, nýtt parket (2022)

· Hjónaherbergi, loft niðurtekið og innfelld lýsing, nýjir fataskápar (2022)

· Nýjir ofnar settir í hjónaherbergi og barnaherbergi (2022)

· Rafmagn endurnýjað sem og rafmagnstafla (2022)

· Ný eldhúsinnrétting ásamt tækjum (2022)

· Ljós og tengill settur upp á svölum

· Baðherbergi, ný borðplata og vaskur settur á innréttingu, nýjir skápar og spegill, nýr klósettkassi og klósett (2025)

· Dren og skólplagnir endurnýjaðar í lóð sem og bílastæði búið til inni á lóð, möguleiki að leggja fyrir hleðslustöð (2025)

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:

Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Kort af Vallargerði 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð