HÚSASJÁ

Sæbólsbraut 41

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
40 myndir

210 m²

Stærð

5

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1984

Byggingarár

328 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



26 dagar á sölu

sell

147.500.000 kr

702.716 kr/m²

209,9fm. endaraðhús á tveimur hæðum við Sæbólsbraut 41 í Kópavogi.

Á neðri hæð er anddyri, stofa, sjónvarpsstofa/fjölskylduherbergi, eldhús, gestasalerni, þvottahús, geymsla og bílskúr.

Á efri hæð er baðherbergi, fjögur svefnherbergi og sjónvarpsherbergi sem auðveldlega má nýta sem fimmta svefnherbergið.  Allir gluggar úr harðvið.

Nánari lýsing:

Neðri hæð - 87,7fm.

Anddyri:  Flísar á gólfi, fataskápur og fatahengi.

Þvottahús:  Inn af anddyri er þvottahús með skápum, innréttingu og vask. Geymsla inn af þvottahúsi.

Gangur: Flísar á gólfi.  Af ganginum er komið inn í eldhús og stofu.  Inn af ganginum er gestasalerni.

Gestasalerni:  Upphengt salerni, flísar á gólfi og upp á miðja veggi.

Eldhús: Snyrtileg innrétting, nýleg tæki s.s. ofn og ofn/örbylgjuofn í vinnuhæð.  Nýlegt spanhelluborð.  Nýlegur ísskápur sem getur fylgt.  Góður borðkrókur í eldhúsinu.

Stofa: Olíuborið parket, arin í góðu lagi.  Nýlegir gluggar í stofunni.

Sjónvarpsstofa/fjölskylduherbergi:  Komið er inní sjónvarpsstofuna bæði frá eldhúsi og stofu.  Flísar á gólfi.  Útgengt á skjólsælan fallegan pall til suðurs.

Bílskúr er 25,4fm.:  Lakkað gólf, bílskúrshurðaopnari.  Heitt og kalt vatn.

Efri hæð - 96,8fm.

Komið er upp olíuborinn stiga.

Miðrými:  Olíuborið parket.  Inngangur í öll herbergi úr miðrýminu.

Fjögur svefnherbergi með góðri lofthæð og skáp.  Þrjú herbergjanna eru með korkflísum á gólfi en eitt með olíubornu parketi.  Úr einu svefnherberginu er útgengt á rúmgóðar svalir til norðurs.  Tvö svefnherbergi eru með skáp.

Sjónvarpsherbergi:  Rúmgott sjónvarpsherbergi sem auðveldlega má nýta sem svefnherbergi.  Útgengt á stórar flísalagðar suður-svalir.

Baðherbergi:  Nýlega uppfært baðherbergi með stórri "walk-in" sturtu, upphengdu salerni og góðri innréttingu.

Lóðin:

Fallega gróin lóð með skjólsælum palli til suðurs.

Hiti í plani að framan.  Stæði fyrir þrjá bíla í innkeyrslunni.

Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.

Fyrir nánari upplýsingar eða panta skoðun, hafið samband við:

Helgafell fasteignasala - Sími 566 0000

Rúnar Þór Árnason, lgf., email: runar@helgafellfasteignasala.is----------------------------------------------------------

Heimasíða Helgafells fasteignasölu

Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Sæbólsbraut 41

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu