HÚSASJÁ

Sæbólsbraut 17

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
49 myndir

201 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1984

Byggingarár

339 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Þvottahús



22 dagar á sölu

sell

174.900.000 kr

872.319 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt og mikið endurnýjað parhús við Sæbólsbraut 17 í Kópavogi. Um er að ræða fjölskylduvæna eign með möguleikum á 4 svefnherbergjum. Samkvæmt FMR er eignin skráð 200,5m²og þar af bílskúr sem er 24,3m². Eignin hefur verið mjög mikið endurnýjuð m.a var Þak, baðherbergi, þvottaherbergi og öll efri hæð hússins endurnýjuð 2025, eldhús, innihurðar, hiti settur í gólf á neðri hæð og öll gólfefni endurnýjuð á árunum 2019-2025. Þetta er eftisótt staðsetning á Kársnesinu þar sem m.a stutt er í leikskóla, verslun og þjónustu.  Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Nánari lýsing: Neðri hæð.

Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, innangengt í bílskúr frá forstofu.

Gestasnyrting: Falleg og nýlega tekin í gegn gestasnyrting með upphengdu salerni og flísum á gólfi.

Hol: Frá forstofu er komið inná hol með góðum skápum.

Eldhús: Eldhúsið er rúmgott með fallegri innréttingu frá Schmidt (Parki) með mjög góðu skápaplássi, granít á borðum og vönduðum heimilistækjum frá Siemens. Stækkað span helluborð, tveir ofnar, innbyggð uppþvottavél og stór tækjaskápur er í eldhúsinu. Í rúmgóðum borðkrók er sérsmíðaður bekkur og eldhúsborð. Frá eldhúsi er gengið út á mjög skjólríka og aflokað timburverönd.

Stofa og borðstofa: Stofurnar eru samliggjandi og rúmgóðar með harðparketi á gólfi og með með útgengi út á baklóð.

Efri hæð: Stigi upp á efri hæð með teppi á gólfi. Efri hæðin er björt og falleg með góðri lofthæð og led lýsingu með dimmer.

Svefnherbergi: Herbergin eru þrjú og mögulegt að bæta við fjórða herberginu. Harðparket er á gólfum og í hjónaherbergi eru rúmgóðir fataskápar. Sjónvarpsherbergi (væri auðvelt að breyta í fjórða svefnherbergið) teppi er á gólfi og útgengt út á svalir.

Þvottaherbergi. Í Þvottaherberginu er falleg og nýleg innrétting með góðu skápaplássi og vélum í vinnuhæð, flísar eru á gólfi og opnanlegur gluggi. Geymsluloft er uppaf þvottahúsinu.

Baðherbergi: Baðherbergi á efri hæð er sérlega glæsilegt með bæði baðkari og stórri sturtu með glerskilrúmi, fallegri innréttingu og upphengdu salerni. Opnanlegur gluggi.

Bílskúr 24.3fm. Bílskúrinn er með flisum á gólfi og nýlegri bílskúrshurð með rafmagnshurðaopnara.

Hiti í innkeyrslu að húsi.

Næg bílastæði, svo er einnig bílastæði í botnlanganum á götunni.

Niðurlag: Þetta er virkilega falleg og mjög mikið endurnýjað parhús á þessum eftirsótta stað í Kársnesinu þar sem stutt er í þjónustu og út í fallegar gönguleiðir. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Kort af Sæbólsbraut 17

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu