HÚSASJÁ

Stórihjalli 3

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

276 m²

Stærð

7

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1976

Byggingarár

420 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



220 dagar á sölu

sell

179.700.000 kr

571.565 kr/m²

LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN KYNNIR:

Virkilega fallegt fjölskylduvænt raðhús á tveimur hæðum.  Eignin er skráð 275,9 fm.  en óskráðir 38,5 fermetrar, raunstærð 314,4 fm.

Eignin hefur fengið afar gott viðhald á síðustu árum.  Allir gluggar og gler endurnýjað 2023, einnig svalahurðar.  Yrtabyrði nýlega viðgert og málað 2023.  Þak endurnýjað 2024.

Auðvelt að gera aukaíbúð á jarðhæð.  4 rúmgóð svefnherbergi í dag, auðvelt að bæta við svefnherbergi.

Frábært útsýni á efrihæð og stór afgirtur suðurgarður og verönd með heitumpotti.  Stórt hellulagt bílaplan fyrir framan eignina, hitalögn undir meirihluta af því.

Frábær staðsetning.  Stutt í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veita:

Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@landmark.is

Sveinn Eyland lögg. fast. s. 6 900 820 eða sveinn@landmark.is

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT STRAX HÉR.

Nánari lýsing:

Neðrihæð:

Forstofa / Miðrými:  Flísar á gólfi, stór fataskápur.

Svefnherbergi:  Rúmgott herbergi með parket á gólfi.

Gestasnyrting:  Flísar á gólfi og veggjum.

Þvottahús / geymsla:  Dúkflísar á gólfi og góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.  Innrétting með borðvaski.  Geymsla innaf þvottahúsi.  Þetta er hluti af óskráðum 17,5 fm.

Bílskúr:  36 fm. Heitt og kalt vatn.  Gólf er málað.  Sjálfvirkur hurðaopnari á bílskúrshurð.  Innaf bílskúr er óskráð rými ca. 21 fm. notað sem hobbý herbergi í dag.  Þriggja fasa rafmagn.

Efrihæð:

Miðrými / Sjónvarphol:  Rúmgott með parket á gólfi, útgengt í afgirtan suðurgarð.  Verönd með heitumpotti.  Stór grasflöt.

Stofa / Borðstofa:  Afar rúmgóðar og bjartar með parket og flísum á gólfi.  Frábært útsýni frá borðstofu yfir borgina og sundin.

Eldhús:  Falleg hvít innréttingum með góðu skápaplássi, vönduð tæki.  Frábært útsýni frá eldhúsi.  Flísar á gólfi og milli skápa.

Svefnherbergi:  3 rúmgóð herbergi, öll með parket á gólfi og fataskápar í öllum herbergjum.  Útgengt frá hjónaherbergi út á suðurverönd.

Baðherbergi:  Afar rúmgott, flísar á gólfi og veggjum.  Baðkar og flísalögð sturta.  Falleg innrétting í kringum 2 handlaugar og góð snyrtiaðstaða með stórum speglum.

Stórt hellulagt bílaplan fyrir framan eignina, hitalögn undir hluta af því.  Steypt ruslutunnugeymsla og góð útigeymsla við hlið inngangs í bílskúr.

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Stórihjalli 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu