HÚSASJÁ

Meðalbraut 4

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
49 myndir

202 m²

Stærð

6

Herbergi

6

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1979

Byggingarár

616 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Þvottahús



6 dagar á sölu

sell

174.900.000 kr

864.130 kr/m²

Erling Proppé lgf. & REMAX kynna glæsilega mikið endurnýjaða efri sérhæð með sérinngangi í veglegu húsi á vinsælum stað í Vesturbæ Kópavogs.

- Fallegt útsýni

- Mikið endurnýjað

- Glæsilegilegur garður með heitum og köldum potti, saunu, garðhýsi ofl.

Allar nánari upplýsingar: Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.is

Nánari lýsing:

Neðri hæð:

Anddyri: Er mjög rúmgott, flísalagt með fallegum 60x60 flísum, gólfhita og góðum fataskápum.

Þvottahús: Rúmgott þvottahús með aðgengi út í garð.

Herbergi 1: Rúmgott herbergi sem var eitt sinn hluti af bílskúr, aðskilið með léttum vegg sem auðvelt er að fjarlægja.

Bílskúr: Er í dag nýttur sem geymsla

Efri hæð: Gengið upp rúmgóðan stiga með góðri lofthæð

Alrými: Er stórt og bjart með miklum gluggum og fallegu lofti sem gefur eigninni mikinn karkter.

Alrými skiptist upp í:

- Sjónvarpsstofa

- Stofa/borðstofa

Eldhús: Falleg vegleg eldhúsinnrétting og eyja, spanhelluborð, ofn í vinnuhæð, gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp, steinn á borðum.

Baðherbergi: Fallegt baðherbergi, flísalagt hólf í gólf með 60x60 flísum, walk in sturta með innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofn og stór rennihurð sem liggur niður á pall.

Herbergi 2: Við stiga, barnaherbergi með skápum

Herbergi 3: Barnaherbergi með skápum

Herbergi 4: Barnaherbergi með skápum.

Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum skápum.

Verönd: Sannkallaður sælureitur, stór og mikill pallur með heitum og köldum potti, fallegri saunu með lýsingu undir bekkjum og reyktu gleri í rennihurð. Garðhýsi og setubekkir með ljósa "pergólu", hlaðnir grjótveggir og grillskápur.

Eignin hefur fengið mikið viðhald og töluverðar endurbætur síðastliðin árin, nánari upplýsingar um framkvæmdir í söluyfirliti.

Heilt yfir er um frábæra mikið endurnýjaða fjölskyldueign að ræða á frábærum stað í Vesturbæ Kópavogs.

Allar nánari upplýsingar:

Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.is

Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Meðalbraut 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð