HÚSASJÁ

Lundarbrekka 14

01-0302 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

101 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1971

Byggingarár

914 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



43 dagar á sölu

sell

77.900.000 kr

723.978 kr/m²

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna í einkasölu Lundarbrekku 14, fallega, vel skipulagða og mikið endurnýjaða 5 herbergja íbúð með útleigueiningu. Íbúðin er á 3.hæð. Fallegt útsýni er úr stofu og eldhúsi til norðurs og vesturs. Eignin er með tvennum svölum bæði norðanmegin og sunnanmegin. Bókið skoðun HÉR.  Eignin er skráð samtals 101,6 fm, sérgeymsla ca 6 fm er ekki skráð inn í heildartölu.

Nánari lýsing:

Anddyri/Hol komið inn af gangi í rúmgott hol með fataskáp. Opið frá holi að stofu og eldhúsi.

Stofa/Borðstofa er björt og falleg með góðum gluggum, fallegt útsýni til norðurs og vesturs. Útgengi á svalir.

Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu, gott skápapláss. Innbyggður ísskápur. og uppþvottavél. Flísar á gólfi. Borðkrókur með útsýni til norðurs og vesturs. Helluborð, bakaraofn í vinnuhæð.

Þvottahús/Geymsla innaf eldhúsi er afar rúmgott þvottahús með hvítri innréttingu. Gott geymslupláss og vinnupláss. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur, opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi.

Hjónaherbergi er bjart og rúmgott með útgengi á sólríkar suðursvalir. Nýlegir fataskápar yfir heilan vegg.

Herbergi II ágætt herbergi, gluggi til suðurs. Fataskápur. Parket á gólfi.

Herbergi III  ágætt herbergi, gluggi til suðurs. Parket á gólfi.

Herbergi III er staðsett í kjallara. Stærð 9,6 fm. Opnanlegur gluggi. Tilvalið til útleigu. Aðgangur að snyrtingu á gangi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi. Baðkar með glerskilrúmi. Handklæðaofn.

Geymsla íbúðinni fylgir ca 6 fm geymsla í kjallara sem er ekki skráð í fm tölu eignarinnar.

Viðhald Íbúð 302

2017 - Eldhúsinnrétting endurnýjuð. Gólfflísar í eldhúsi endurnýjaðar.

2018 - Nýjar teppaflísar lagðar í herbergi á jarðhæð.

2019 - Nýir skápar í hjónaherbergi.

2022 - Parket endurnýjað í öllum rýmum. Nýr skápur í holi.

2023 - Þvottahúsinnrétting endurnýjuð. Þvottahús flísalagt. Nýr bakaraofn í eldhús. Nýr skápur í barnaherbergi.

Allir ofnar verið endurnýjaðir síðustu ár, nema í herbergi á jarðhæð. Rafmagn í íbúð hefur verið endurnýjað að mestu.

Viðhald Lundarbrekka12-16.

2019/2020 - Miklar framkvæmdir. Þak yfirfarið, lagfært og málað. Svalir brotnar niður og endursteyptar á suðurhlið ásamt meira múrverki og inndælingum víða á húsinu. Einstaka gluggar og fög endurnýjuð. Húsið heilmálað.

2025 - Múrviðgerðir og inndælingar á suðurhlið hússins. Allir gluggar þéttir. Verkið mun klárast að vori 2026 og er að fullu fjármagnað.

Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði fyrir framan húsið. Garður er sameiginlegur. Snyrtileg sameign með hjólageymslu.

Mjög góð staðsetning miðsvæðis í Kópavogi. Stutt er í alla helstu þjónustu og stofnbrautir, þá eru þrír leikskólar og þrír grunnskólar í nágrenninu auk íþróttasvæðis og verslana.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali sigridur.lind@heimili.is / 8994703.

Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.

Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Kort af Lundarbrekka 14

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42