Lundarbrekka 10
01-0304 · 200 Kópavogi



478 dagar á sölu
66.000.000 kr
763.006 kr/m²
Borg fasteignasala kynnir: 3ja herbergja íbúð á 3.hæð í fjölbýlishúsi við Lundarbrekku 10, 200 Kópavogi. Eignin skiptist í forstofu, stofu, svalir, gluggalaust rými, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymsla. Birt stærð íbúðar er 86,50 m².
Nánari lýsing:
Forstofa: Við inngang íbúðar tekur á móti forstofa með nýlögðum gólfflísum og inn af henni er geymsla íbúðar.
Stofa: Stofa er björt með gluggum til suðurs sem gefa góða birtu.
Svalir: Út frá stofu er gengið út á suðursvalir.
Auka rými: Í hluta stofu hefur verið útbúið auka gluggalaust herbergi/rými.
Eldhús: Eldhús hefur verið endurnýjað með nýrri viðar- og hvítri eldhúsinnréttingu og nýju parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með nýrri hvítri innréttingu, nýju salerni og sturtuklefa.
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign á 1. hæð sem er ekki skráð inni í fermetratölu eignarinnar. Geymslan er rúmgóð, um 10 fm að stærð.
Eignin er vel staðsett með leik- og grunnskóla í göngufæri, auk helstu þjónustu og verslana.
Nánari upplýsingar veitir:
Díana Thanh Andradóttir, aðstoðamaður fasteignasala, í síma 868-0146, tölvupóstur diana@fastborg.is
Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali, í síma: 868-2222, tölvupóstur victor@fastborg.is
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





















