Lyngheiði 4
01-0101 · 200 Kópavogi



19 dagar á sölu
119.900.000 kr
715.394 kr/m²
GIMLI KYNNIR - EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR Á EINSTÖKUM STAÐ Í KÓPAVOGI
Nánari lýsing; Komið er inn í forstofu með skápum. Flísalögð gestasnyrting. Þvottahús með innréttingu og útgengi í garð.
Hol með útgengi á afgirta timburverönd til suðurs með heitum potti, frá verönd er gengið í fallegan garð. Við hol er barnaherbergi.
Rúmgóð og björt stofa, til hliðar við stofu er borðstofa. Eldhús með góðri innréttingu.
Herbergjagangur með skáp. Barnherbergi með skáp. Flísalagt baðherbergi með sturtu og innréttingu. Hjónaherbergi með góðum skápum.
Gólfefni; Parket og flísar.
Bílskúr er sambyggður húsi en taka þarf bílskúr í gegn, bakinngangur er í bílskúr (út á verönd).
Í heild er um að ræða mjög skemmtilega eign á frábærum stað í Kópavogi.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR ELLERT S. 661-1121 EÐA Á SKRIFSTOFU S. 570-4800, ellert@gimli.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir






























