HÚSASJÁ

Kópavogsbraut 85

01-0202 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
33 myndir

75 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1978

Byggingarár

813 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



15 dagar á sölu

sell

68.600.000 kr

911.023 kr/m²

Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna: Kópavogsbraut 85, 200 Kópavogi.

Mjög mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á efri hæð (2. Hæð) í 6 íbúða húsi með óhindruðu sjávarútsýni. Virkt starfandi húsfélag er í húsinu og er í umsjón hjá Eignarekstri.

Uppgefin heildarstærð eignar er 75,3 fm en auk þess er geymsla í kjallara sem er með 7 fm gólffleti að innanmáli, að stærstum hluta með fullri lofthæð, en að hluta undir stiga.

Heildarstærð eignar er því í raun ca 82 fm. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni.

>> SÆKTU SJÁLFVIRKT SÖLUYFIRLIT HÉR

>> SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD MEÐ EÐA ÁN HÚSGAGNA MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Skipulag séreignar: Forstofa, gangur, eldhús, stofa/borðstofa, 2 herbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Í kjallara er geymsla.

Nánari lýsing:

Harðparket er á allri íbúðinni utan baðherbergis sem er með flísum og málað gólf á þvottaherbergi. Hvítlakkaðar innihurðar.

Forstofa: Eikar eldvarnarhurð er inn í íbúðina.

Gangur / hol: Tengir saman öll rými eignarinnar. Tvöfaldur skápur hólf í gólf á gangi.

Stofa / borðstofa: Mjög björt stofa með stórum endurnýjuðum glugga með fallegu sjávarútsýni í átt að Arnarnesinu. Útgengi er á rúmgóðar suðursvalir frá stofu. Strimlagluggatjöld.

Eldhús: Er endurnýjað. Hvít U-laga innrétting úr Ikea með viðarborðplötu og vegghillum. Ísskápur er innbyggður sem og uppþvottavél. Bakaraofn með stálframhlið í vinnuhæð sem og combi ofn. Span helluborð og hvítur lofthengdur eyjuháfur (eitt gler í ljósi háfs er brotið). Setuaðstaða við enda eldhúsinnréttingarinnar. Eldhúsið er bjart með tveimur gluggum og er vaskurinn við annan gluggann. Strimlagluggatjöld.

Baðherbergi: Hvít innrétting með skúffum undir handlaug og viðarborðplötu. Hár veggengdur skápur með hurðum og opnum hillum. Stór veggspegill. Hvítur handklæðaofn, baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar á votsvæði baðherbergis, annars lakkaðir veggir. Nýleg salernisskál. Opnanlegur gluggi.

Herbergi I: Rúmgott og bjart með hvítum fataskáp hólf í gólf eftir einum vegg. Gluggi og útgengi út á svalir. Myrkrarúllugardínur fyrir glugga og svalahurð.

Herbergi II: rúmgott með stórum glugga. Myrkrarúllugardína.

Þvottahús / búr: Er inn af eldhúsi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Borðplata sem býður upp á gott vinnupláss.

Sérgeymsla: Staðsett í kjallara: Rúmgóð með hillum. Geymslan teygir sig undir stigann svo hún er stærri en ella. Gluggi. Er utan fermetratölu.

Sameign: Sameiginlegur inngangur er í snyrtilegt stigahús sem er með tveimur hæðum og kjallara. 2 íbúðir eru á hæð.

Hjólageymsla er aðgengileg um sérhurð á utanverðu húsinu.

Sérmerkt bílastæði fyrir hverja íbúð á lóð auk þess sem 2 gestastæði eru til staðar.

Framkvæmdasaga síðustu árin:

2020: Íbúðin var endurnýjuð að mjög miklu leyti, Harðparket á allri íbúð endurnýjað, nýeldhúsinnrétting, lagnir að vegg og tæki í eldhúsi, skápahurðar, nýtt rafmagn dregið í íbúð og tenglar/innstungur endurnýjað.

2018: Gluggi í stofu endurnýjaður. Hús múrviðgert og hús/gluggar málaðir að því loknu.

xxxx: Þakklæðning endurnýjuð (skv. upplýsingum í ástandsskýrslu um húsið.

Aðalfundur húsfélags verður haldinn 25. febrúar þannig að nánari upplýsingar um niðurstöðu fundar mun liggja fyrir á sýningardegi.

Allar nánari upplýsingar veita:

Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og í netfanginu gudbjorg@remax.is

Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 og i netfanginu gylfi@remax.is

Kort af Kópavogsbraut 85

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð