HÚSASJÁ

Kópavogsbraut 70

01-0201 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
62 myndir

162 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1966

Byggingarár

756 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



97 dagar á sölu

sell

145.000.000 kr

890.663 kr/m²

Einstaklega fallegt útsýni og frábær staðsetning í vesturbæ Kópavogs. Eignin er vel skipulögð og nýtast fermetrar eignarinnar vel. Birt stærð 162,8 fm og þar af bílskúr 30,1 fm. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni. Sér þvottahús á hæðinni og geymsla. Tvær snyrtingar. Sér inngangur, útsýnissvalir og fleira prýða þessa fallegu eign.

Hér getur þú skoðað eignina í 3 D

Nánari lýsing:

Komið er inn um sér inngang í anddyri sem eru flísar á gólfi og er svo gengið upp teppalagðan stigagang með mikilli lofthæð upp á stigapall á annari hæð sem er með góðum skáp. Þaðan á hægri hönd er gengið inn í þvottahús. Flísar eru á gólfi, tengi fyrir þvottavél, þurrkara og ískáp. Innan af þvottahúsinu er geymsla með flísum á gólfi. Gestasnyrting er svo við hliðina á þvottahúsinu, þar eru flísar á gólfi, salerni og handlaug. Gengið er inn í parketlagt alrými. Á vinstri hönd er herbergi. Stofa og borðstofa eru parketlagðar, nýlegt eldhús er opið við stofu. Parket er á gólfi, innrétting með góðu skápaplássi, helluborði og bakaraofn í vinnuhæð. Svo er gengið inn í stofu/borðstofu. Stórir gluggar sem gefa frábært útsýni til suðurs og gerir rýmið einstaklega bjart. Svefnherbergi eru fjögur talsins og er parket á gólfum herbergja. Baðherbergið er flísalagt með baðkari með sturtuaðstöðu, sturtugleri, salerni, handlaug hvítri innréttingu og brúnum stórum skáp. Lóðin er fallega ræktuð sem snýr í suður og vestur. Bílskúrinn er rúmgóður með köldu vatni sem og rafmagni. Búið er að gera rúmgóða geymslu innst í bílskúr.

Nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason as@hofdi.is, Gsm 895- 3000.-

Kort af Kópavogsbraut 70

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð