HÚSASJÁ

Kársnesbraut 103

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
60 myndir

186 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1966

Byggingarár

746 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



212 dagar á sölu

sell

149.900.000 kr

805.914 kr/m²

Kársnesbraut  103 Kópavogur.

Valhöll fasteignasala Síðumúla 27, Sími: 588-4477 og Snorri Snorrason.  Lg.fs.  Sími: 895-2115 -  snorri@valholl.is, kynna til sölu gott  og vel skipulagt  6-7 herbergja einbýlishús á eftirsóttum stað á Kársnesinu í Kópavogi. Bílskúrinn er innréttaður sem tómstudaherbergi,  suðurverönd og  heitapottur. Húsið sem er skráð  154 fm og bílskúrinn 32 fm og stendur á 746 fm lóð með lokuðum suður garði, stórri verönd með heitum potti. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og endurskipulögð,

Við húsið hefur verið byggður um  8 fm sólskáli svo og  2,5 fm forstofa sem ekki er í  birtum fermetrum eignarinnar.   Við bílskúrinn hefur verið byggð  14 fm geymsla og fyrir framan  er opið 28 fm bílskýli.

Innkeyrslan er hellulögð og  með snjóbræðslukerfi. Húsið  sem er pallahús hefur verði endurskipulagt td: 2 herbergjum breytt í sjónvarpsstofu, veggir teknir niður í holi og stofu og húsið því mjög bjart og opið.

Auðvelt er að breyta aftur og bæta við 1 eða 2 svefnherbergjum.

Nánari lýsing:

Miðrými

Forstofa: Náttúruflísar á gólfi með gólfhita

Hol:  Náttúruflísar á gólfi með gólfhita, úr holi er  gengið upp á efri og neðri pall.

Eldhús:  Náttúruflísar á gólfi með gólfhita,  falleg viðarinnrétting, AEG og Electrolux ofnar, gashelluborð, viftuháfur og flísar á veggjum.

Borðstofa:  Náttúruflísar á gólfi með gólfhita.

Stofa: Parket á gólfi,  ein trappa niður frá borðstofu og holi, rúmgóð með uppteknu lofti og innangengt í sólstofu.

Sólstofa: Náttúruflísar á gólfi með gólfhita, útgangur út á suðurverönd með heitum potti.

Efri pallur:

Sjónvarpshol/stofa: Parket á gólfi,  mjög rúmgóð ( var áður 2 herbergi)

Herbergi I: Hjónaherbergi með parket á gólfi og fataskápar.

Baðherbergi I: Náttúruflísarflísar á gólfi og á veggjum, dökk innrétting, skápur,  walk in sturta og vegghengt wc.

Neðri pallur:

Hol og stigi: flísar á gólfi og parket á þrepum.

Baðherbergi II: Flísar á gólfi og veggjum, vegghengt wc og  baðkar.

Herbergi II: Barnaherbergi, parket á gólfi

Herbergi III: Barnaherbergi, málað gólf.

Herbergi IIII: Barnaherbergi, málað gólf.

Þvottahús:  Flísar á gólfi, vaskur í borði hillur og útgengt út á bílastæði.

Garður: Stór og lokaður suðurgarður með góðri veönd

Verönd: Stór suðurverönd með skjólvegg og  með heitum potti.

Bílskúr: Rúmgóður 32 fm, gönguhurð og rafdrifin bílskúrshurð, 2 milliloft, nú innréttaður sem vinnuaðstaða. Við bílskúr er stórt opið bílskýli um 28 fm..

Geymslur:  Einagruð heit geymsla við hlið bílskúrs um 14 fm. Kaldar geymslur eru 2 önnur við bílskúr og hin frístandandi garðhús.

Aðrar upplýsingar:

Hellulögð innkeyrsla  með hitalögn frá bílskúrshurð og  út að götu. Bílastæði við aðalinngang er hellulagt en ekki með hitalögn.

Dregið  í  nýtt rafmagn nema í 3 herbergi í kjallara árið 2007 og klárað í kjallaraherbergjunum  árið 2024.

Nýtt dren árið 2006.

Nýtt skólp út í götu árið 2006.

Skipt var um þak árið 2006 allt nema 2 sperrur.

Þakkantur yfirfarinn árið 2007.

Málað var að utan fyrir 5 árum.

Nýtt gler og listar í alla glugga nema í stóru stofu.

Blöndunartæki skipt út 2014.

Skipt um vatnslagnir og settur gólfhiti árið 2006.

Kort af Kársnesbraut 103

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu