Hraunbraut 14
01-0001 · 200 Kópavogi



39 dagar á sölu
59.900.000 kr
791.281 kr/m²
Páll Konráð & LIND fasteignasala kynna vel skipulagða 2ja-3ja herbergja íbúð með sérinngangi við Hraunbraut 14 í Kópavogi.
Samkvæmt fasteignayfirliti frá Þjóðskrá Íslands er eignin samtals skráð 76,7 m2.
-MÖGULEIKI AÐ BÆTA VIÐ SVEFNHERBERGI-
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Um er að ræða vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang á bakhlið hússins. Í íbúðinni er góð lofthæð, rúmgóð stofa og svefnherbergi. Eldhús og rými inn af því sem mætti nýta sem skrifstofu. Geymsla er staðsett innan íbúðar.
-//- 2021: Dregið nýtt rafmagn í íbúðina og endurnýjað tengla. Nýtt harðparket á gólf.
-//- 2026: Nýjar flísar í forsstofu.
-//- 2022-2025: Nýjar innihurðar frá BYKO.
Nánari lýsing:
Forstofa: flísar á gólfi.
Hol: harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa: harðparket á gólfi, rúmgott og bjart alrými.
Svefnherbergi: með góðum fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum, sturta, nýleg baðinnrétting og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.
Eldhús: flísar á gólfi, borðkrókur.
Rými inn af eldhúsi: nýtist sem skrifstofa, en eins mætti stækka eldhúsið sem því nemur.
Geymsla: staðsett inn af eldhúsi.
Bakgarður hússins er rúmgóður og í sameign en hann nýtist vel fyrir umrædda íbúð þar sem sérinngangur í eignina er staðsettur á bakhlið hússins. Að sögn eiganda var húsið múrviðgert og málað árið 2016 en árið 2019 var dren lagfært fyrir framan húsið og í framhaldi af því sprunguviðgert aftur á framhlið hússins og málað.
Eignin er einstaklega vel staðsett, en hún er í göngufæri við samgöngumiðstöð í Hamraborg sem og sundlaug Kópavogs svo nokkuð sé nefnt.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir
































