HÚSASJÁ

Holtagerði 4

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
38 myndir

210 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1957

Byggingarár

621 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



172 dagar á sölu

sell

135.000.000 kr

642.245 kr/m²

Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir hjá RE/MAX fasteignasölu kynna sérhæð í  tvíbýlishúsi við Holtagerði í Kópavogi. Flott fjölskyldueign á tveimur hæðum á góðum stað rétt hjá þar sem Fossvogsbrúin mun rísa. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum.

Húsið er steinsteypt. Kjallari (séreign), tvær hæðir með tvíhalla risþaki og kvistum. Viðbyggður bílskúr í kjallara með flötu þaki og sólstofu að hluta til á þaki. Vel rúmgóðar svalir fyrir aftan sólstofuna með útsýni yfir Fossvogin og lengra.

Eignin skiptist svona:

Neðri hæð: Anddyri, lokað fatahengi, stofa, borðstofa, eldhús, herbergi, baðherbergi og þvottahús.

Efri hæð:  þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.

Nánari lýsing:

Stofan er með flottan glugga sem setur svip á rýmið. Svalir meðfram húsinu á vesturhlið. Eldhús er uppgert með tvo ofna. Rými fyrir tvöfaldan ísskáp. Flott útsýni út um eldhúsgluggann. Rúmgott herbergi á hæðinni nýtist sem skrifstofa í dag. Baðherbergi niðri er með sturtu og þvottaaðstaða er í sama rými. Það hefur verið uppgert á mjög smekklegan hátt. Walk-in sturta, hvítar flísar með marmaraáferð og innfelld lýsing í loftinu.

Í miðrými er stiginn upp á efri hæð. Stór gluggi gefur rýminu flott útlit og mikla birtu. Fallegt útsýni.

Á efri hæð eru þrjú rúmgóð svefnherbergi. Kvistir gefa hlýlega stemmningu. Í hjónaherbergi er einnig útgengi á svalir sem snúa út í garð. Búið er að skipta um handrið á svölum í svefnherbergi og á svölum í stofu. Baðherbergi hefur verið alveg endurnýjað. Veglegt hornbaðkar, gott skápapláss, flott lýsing yfir snyrtieiningu og tveir vaskar.  Tvö geymslurými eru einnig á hæðinni. Eins og er með rishæðir þá er gólfflötur stærri en uppgefnir fermetrar.

Bílskúr er rúmgóður og  með hita, vatni og 3ja fasa rafmagni. Hiti  er í innkeyrsluplani og lýsing í gangstéttinni.

Eldri sólstofa er yfri bílskúr sem býður upp á frábæran sælureit með útsýni yfir voginn og víðar. Búið er að einangra hana en eftir að klára frágang og aðrar lagfæringar.

Frábær eign fyrir stórar fjölskyldur. Grunnskólinn er í göngufæri er staðsettur rétt innar í götunni.

Skv. eignarskiptasamning er sérafnotaréttur sunnan og austan megin við húsið sem er garðurinn fyrir framan húsið og innkeyrslan við hliðina auk þess að eiga forkaupsrétt á neðstu hæðinni.

Afgirtur gróinn garður.

Búið er að skipta um glugga og ofna í allri íbúðinni

2017 Skipt um allar raflagnir og nýjir tenglar settir í

2018 Skipt um vatnslagnir á neðra baðherbergi

2020 skipt um snjóbræðslulagnir og sett ný grind fyrir þær í tæknirými

2021 Skipt um alla glugga og bílskúrshurð

2022 Húsið málað

2025 skólplagnir fóðraðar

Múrverk á bílskúr þarfnast viðgerða. Einhver leki til staðar.

Varð vart við leka frá svölum í hjónaherbergi og stofu 2024. Var lagfært og epoxy málning sett á gólfflötin.

Allar nánari upplýsingar veita:

Vernhað Þorleifsson, löggiltur fasteignasali, í síma 699 7372 eða í tölvupóst: venni@remax.is

Magga Gísladóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 698 7494 eða í tölvupóst: magga@remax.is

Kort af Holtagerði 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38