Hlíðarvegur 33A
02-0101 · 200 Kópavogi



166 dagar á sölu
79.500.000 kr
1.200.906 kr/m²
Fasteignasalan Garður
Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu 66,20 fermetra einbýlishús á baklóð í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Kópavogi. Húsið situr á skjólgóðum stað, snýr í suður, er allt á einni hæð og hefur verið endurnýjað að innan. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Húsið þarfnast viðhalds að utan en hægt er að semja um það sérstakelga við seljanda.
Húsið hefur fengið verulegar endurbætur að innan: nýtt gólfefni, nýjar lagnir að hluta, nýtt rafmagn að hluta, nýtt hitavatnsinntak, ný ljós í loftum, ný lagnagrind, allar ofnalagnir nýjar ásamt ofnum frá Vatnsvirkjanum. Ný útidyrahurð og ljósleiðari í húsinu. Skólplögn í og út úr húsi endurnýjuð. Milliveggir klæddir upp á nýtt og málaðir.
Eignin skiptist í: anddyri, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 66,2 fermetrar.
Nánari lýsing:
Anddyri: Nýtt gólfefni og nýjar hurðar frá Birgisson.
Eldhús: Flísar á gólfi. Ný eldhúsinnrétting frá Birgisson, AEG helluborð og bakaraofn frá Rafha, Samsung ísskápur og vönduð uppþvottavél. Ný Grohe blöndunartæki
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með nýju vinyl gólfefni.
Hjónaherbergi: Nýmálað með nýju gólfefni og hurð frá Birgisson.
Barnaherbergi: Nýmálað með nýju gólfefni og hurð frá Birgisson.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og í sturtu. Ný innrétting með skúffum, Grohe blöndunartæki, vegghengt salerni frá Tengi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Ný Samsung þvottavél fylgir. Sturtan flísalögð með flísum frá Álfaborg og veggir málaðir með háglans lakki.
Staðsetningin er afar góð – stutt í skóla, leikskóla, útivist, íþróttasvæði, strætó og alla helstu þjónustu. Næg bílastæði eru í nágrenninu.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





