HÚSASJÁ

Hlíðarhjalli 52

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

66 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1988

Byggingarár

550 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Heitur pottur



8 dagar á sölu

sell

64.600.000 kr

978.788 kr/m²

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:

Hlíðarhjalli 52, íb 101, 200 Kópavogur.

Um er að ræða vel skipulagða og mikið endurnýjaða íbúð með sérinngangi á neðri hæð í góðu steinsteyptu tvíbýlishúsi. Byggt 1988. Eignin er 66.0 fm að stærð skv skráningu HMS. Geymsla innaf eldhúsi var stækkuð og nýtt sem herbergi.

Vel staðsett eign, í botnlangagötu í rólegu og grónu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, skóla, íþróttaaðstöðu, verslanir og þjónustu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi.

Hol: Flísar á gólfi, fataskápur á gangi.

Eldhús: Flísar á gólfi. Nýleg innrétting og tæki, helluborð, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél.

Geymsla: Stækkuð og nú nýtt sem herbergi. Parket á gólfi, fataskápur, rennihurð.

Stofa: Parket á gólfi, rúmgóð og björt með stórum gluggum í tvær áttir.

Baðherbergi: Flísar á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu, salerni, handklæðaofn, innrétting með vaski, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.

Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. Gengið út á sólpall.

Lóð: Sólpallur móti suðri með skjólveggjum og heitum potti (hitaveituskel).

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum.

Þak yfirfarið og skipt um járn og þakkant. Dren endurnýjað. Sólpallur er nýlegur. Nýlegur lítill geymsluskúr á lóð. Gluggar og gler endurnýjað að hluta. Rafmagn innan íbúðar endurnýjað að hluta. Ofnar og ofnalagnir endurnýjaðar. Nýleg gólfefni á allri íbúðinni. Eldhúsið endurnýjað. Baðherbergi uppgert að hluta.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:

Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.

Engin umsýsluþóknun.

Kort af Hlíðarhjalli 52

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu