HÚSASJÁ

Hlíðarhjalli 31

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
61 myndir

259 m²

Stærð

7

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1990

Byggingarár

524 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur

Auka íbúð



113 dagar á sölu

sell

219.800.000 kr

849.304 kr/m²

Valhöll fasteignasala kynnir reisulegt og fallegt einbýlishús á tveimur hæðum sem er staðsett innst inn í rólegum botnlanga í Hlíðarhjalla í suðurhlíðum Kópavogs. Húsið stendur á einum veðursælasta stað landsins og snýr á móti suðri með frábæru útsýni frá austri til vesturs yfir Kópavoginn og til fjalla og sjávar. Fimm svefnherbergi eru í húsinu og tvö baðherbergi hentar það því stórum fjölskyldum vel. Möguleiki er að vera með séríbúð á neðri hæð. Mikil lofthæð á efri hæð.

Húsið er skráð 258,8 fm á stærð og þar af er bílskúrinn 36,6 fm. Um er að ræða steinsteypt hús sem var byggt árið 1990 en fullklárað að innan nokkrum árum síðar. Skemmtilega teiknað hús eftir Steingrím Haugsson.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, skjólsæll suðurgarður með timburverönd og heitum pott. Stórt hellulagt bílastæði með hitalögn. Tvennar rúmgóðar svalir og eru aðrar þeirra ofan á bílskúrnum. Við hlið hússins er tennisvöllur og grasivaxið og fallegt svæði. Stutt er í góðar gönguleiðir í Kópavogsdalnum sem er frábær til útvistar.

Fasteignamat ársins 2026 verður 172.800.000 kr.

Frekari upplýsingar veitir:

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfanginu snorribs@valholl.is

Nánari lýsing:

Neðri hæð:

Anddyri: með fataskápum og flísum á gólfi.

Stofa: með flísum á gólfi og útgengi út á timburverönd.

Svefnherbergi: með fataskápum og flísum á gólfi.

Svefnherbergi: með flísum á gólfi.

Eldhúskrókur: með hvítri innréttingu og flísum á gólfi.

Þvottahús: með með innréttingu og flísum á gólfi.

Geymsla / vinnurými: með flísum á gólfi.

Efrihæð:

Stigi: fallegur bogadregin stigi með flísum á þrepum liggur upp á efri hæðina.

Stofa / borðstofa: samliggjandi í opnu alrými með arinn, mikilli lofthæð og flísum á gólfi. Útgengi út á tvennar svalir. Glæsilegt útsýni frá stofu.

Eldhús: með eikarinnréttingu, góðum borðkrók og flísum á gólfi.

Hjónaherbergi: með fataskápum og flísum á gólfi og útgengi út á svalir ofan á bílskúr.

Svefnherbergi: með flísum á gólfi.

Svefnherbergi: með flísum á gólfi.

Baðherbergi: með sturtu, innréttingu og aðstöðu fyrir baðkar.

Bílskúr:

36,6 fm bílskúr með góðri lofthæð.

Lóð:

Fyrir framan húsið er hellulagt bílaplan sem rúmar vel 3 bíla. Einnig er hægt að leggja t.d. kerru / fellihýsi við austur hlið hússins. Við suðvestur hlið hússins er garður með grasbala, gróðri og timburverönd með heitum potti. Fyrir aftan húsið er stórt hellulagt svæði með steyptum veggjum og handriði.

Frekari upplýsingar veitir:

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfanginu snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Hlíðarhjalli 31

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55Mynd 56Mynd 57Mynd 58Mynd 59Mynd 60Mynd 61