HÚSASJÁ

Hlíðarhjalli 24

01-0201 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

205 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1988

Byggingarár

550 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Geymsla

Þvottahús



17 dagar á sölu

sell

159.000.000 kr

775.232 kr/m²

Glæsileg, rúmgóð eign með bílskúr í tvíbýlishúsi við Hlíðarhjalla 24, Kópavogi.

Þorsteinn Ólafs, löggiltur fasteignasali og RE/MAX, kynna í einkasölu bjarta og vel skipulagða 205,1 fm íbúð með bílskúr í tvíbýlishúsi við Hlíðarhjalla 24. Um er að ræða efri hæð og hluta jarðhæðar með fallegum suðurgarði.

Íbúðin samanstendur af anddyri, gang, stofu, gestasnyrtingu, eldhúsi, húsbóndaherbergi og stigagangi  á milli hæða. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi, skáli, baðherbergi, sauna og þvottaherbergi með geymslu. Íbúðinni tilheyrir bílskúr sem er áfastur húsinu.

Nánari lýsing

Efri hæð:

Við inngang er komið inn í anddyri og gang. Á hægri hönd er herbergi, merkt á teikningu sem húsbóndaherbergi.

Í forstofu er gestasnyrting og í framhaldi af henni stórt og mikið eldhús með borðstofuborði.

Stofan er rúmgóð og í hluta hennar er sjónvarpsrými.

Útgengi er á s valir í suður frá borðstofu og á aðrar svalir sem eru bæði í suður og vestur.

Bílskúr.  Íbúðinni tilheyrir bílskúr sem er áfastur húsinu. Bílskúrnum er skipt í tvö herbergi, ytra og innra. Þar er heitt. og kalt vatn, sjálfvirk opnun og bílahleðslustöð. Gluggar í suður og austur og hurð út á svalir í austur. Auðvelt að breyta aftur í bílskúr.

Neðri hæð:

Tvö svefnherbergi

Baðherbergi og sauna inn af baðherbergi

Rúmgott þvottaherbergi með geymslu.

ATHUGA: Einnig er til sölu 2 - 3ja herbergja 81 fm. íbúð á neðri hæð í sama húsi.  Sjá sér auglýsing um hana. Sú íbúð er samþykkt og á sér fastanúmeri.

Öll fasteignin, Hlíðarhjalli 24 getur selst í einu lagi eða hvor eining fyrir sig.

Fasteignin Hlíðarhjalli 24 er staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í suðurhlíðum Kópavogs með fallegum gönguleiðum í nágrenninu og hjólastígum. Stutt er í alla helstu þjónustu s.s.  verslun, leikskóla og grunnskóla.

Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafs, löggiltur fasteignasali - 842 2212 / to@remax.is

Kostnaður kaupanda:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu 69.900 m. vsk.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Vinsamlega hafið samband við Þorstein Ólafs löggiltan fasteignasala  í síma 842-2212 eða með pósti á to@remax.is.

Kort af Hlíðarhjalli 24

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð