HÚSASJÁ

Hlíðarhjalli 10

01-0302 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

115 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1988

Byggingarár

4087 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



81 dagar á sölu

sell

86.700.000 kr

751.951 kr/m²

Hrafnkell Pálmi á Lind kynnir þessa björtu og vel skipulögðu fjögurra herbergja íbúð með fallegu útsýni á þessum frábæra stað við Hlíðarhjalla.

Eignin er mjög rúmgóð og hefur verið töluvert endurnýjuð. Góðar svalir til suðurs.

Íbúðin er merkt 302 og er á 3. (næst efstu) hæð en er 2 hæðir upp þegar komið er inn í sameignina.

Nánari upplýsingar veitir:

Hrafnkell Pálmi Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.

Fyrirhugað fasteignamat 2026 er kr. 80.800.000-.

Íbúðin er skráð samkvæmt HMS 115,3 fm. og skiptist í: anddyri, sjónvarpshol, 3 svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymsla í sameign.

Nánari lýsing:

Anddyrið er með flísum á gólfi og góðum fataskápum.

Sjónvarpsholið tengir önnur rými og er með parket á gólfi og góðum skápum.

Svefnherbergi I er fyrst til hægri eftir anddyrið og er með parekt á gólfi og góðum fatskápum.

Stofan og borðstofan mynda mjög rúmgott rými með parket á gólfi og útgent á svalir til suðurs.

Eldhúsið var endurnýjað fyrir um 6 árum á afar smekklegan máta. Góð innrétting með miklu skápaplássi og vinnurými. Flísar á gólfi með gólfhita og góðum eldhúskrók. Flísar milli borðs og skápa. Ofnar í góðri vinnuhæð. Gluggar til norðvesturs.

Baðherbergið er rúmgott með flísum á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu, góðum skápum og geymslurými, fallegur handklæðaofn og vaskaskápur. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.

Svefnherbergi II er gengið inn í milli eldhúss og stofu og er með parket á golfi og glugga til norðvesturs.

Svefnherbergi III er inn af stofu og er með parket á gólfi og glugga til suðurs (merkt borðstofa á upphaflegum teikningum).

Sér geymsla staðsett í sameign hússins.

Fyrir 6 árum var allt gólfefni endurnýjað, öllum ofnum, og rofum og tenglum.

Hjóla- og vagnageymsla er staðsett í sameign hússins.

Snyrtileg stigagangur og falleg garður.

Stutt í þjónustu, skóla, leikskóla, Menntaskólan í Kópavogi, Smáratorg ofl.

Byggt 1988 og tilheyrir heildarhúsinu Hlíðarhjalli 10 - 12 - 14 sem er sambyggt á sameiginlegri lóð.

Á hæðinni eru 3 íbúðir og í heild 10 íbúðir við Hlíðarhjalla 10.

Hlutfallstala við Hlíðarhjalla 10 er 12,80% og 4,32 % af heildinni.

Hlíðarhjalli 10, 200 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 03-02, fastanúmer 206-1736 (skráð 3ja herb. í EGS) ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Hlíðarhjalli 10 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-1736, birt stærð 115.3 fm.

Nánari upplýsingar veitir:

Hrafnkell Pálmi Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Hlíðarhjalli 10

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð