HÚSASJÁ

Hlégerði 9

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
52 myndir

232 m²

Stærð

3

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1969

Byggingarár

916 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



23 dagar á sölu

sell

131.900.000 kr

569.516 kr/m²

Hlégerði 9 - Kópavogi

ATH: Opið hús sem átti að fara fram þriðjudaginn 3.mars er frestað vegna veðurs og fært til fimmtudagsins 5.mars frá 17:30-18:00.

ATLI 6995080

STOFAN FASTEIGNASALA kynnir 4 herbergja sérhæð með 3 herbergja aukaíbúð á fjölskylduvænum og vinsælum stað við Hlégerði 9, Kópavogi, samtals skráð skv. HMS 231,6 fm. Aukaíbúð í kjallara með sérinngangi. Bílskúrsréttur.

Komið er inn í forstofu með fataskápum og fatahengi, kókosteppi á gólfi.

Gestasalerni er innaf forstofu með handlaug og salerni.

Gangur / hol með parketi á gólfi.

Hjónaherbergi er rúmgott með dúk á gólfi. Fataherbergi inn af herberginu.

2 barnaherbergi með dúk á gólfi.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, falleg hvít vaskinnrétting ásamt speglaskáp, upphengt salerni og sturta með gleri.

Eldhús með upprunalegri innréttingu, eldavél og vifta, parket á gólfi. Búr/geymsla er inn af eldhúsi og einnig rúmgott þvottahús með glugga.

Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með stórum gluggum, parketi á gólfi og  panilklæddum veggjum. Loftaklæðning í stofu og gangi er úr frauðplastflísum.

Garður snýr í suðaustur og er stór, gróðursæll og fallegur. Steinmöl á bílastæðum.

Sérgeymsla fylgir íbúðinni í sameign.

Bílskúrsréttur: Á samþykktum teikningum er gert ráð fyrir bílskúr sem aldrei var byggður.

Húsið er staðsteypt með bræddum þakpappa á þaki, steniklætt að hluta.

Aukaíbúð

Í kjallara er 3 herbergja íbúð með geymslu.

Svefnherbergin eru 2 ásamt rúmgóðri stofu. Ekki er full lofthæð í kjallara.

Komið er inn á forstofugang með máluðu steingólfi.

Eldhús með snyrtilegri nýlegri innréttingu og hillum ásamt nýlegri eldavél með bakarofni. Dúkur á gólfi.

Baðherbergi er með eldri frístandandi skápaeiningu og vaskborði. Baðkar með sturtustöng.

2 svefnherbergi með plastparketi á gólfi.

Stofan er rúmgóð með dúk á gólfi.

Ástand, endurbætur og viðhald skv. seljendum:

Aðalbaðherbergi endurnýjað 2023

Nýlega var skipt um gler við útidyrahurð.

Stétt og tröppur við útidyrahurð múraðar 2025

Gluggar málaðir að utan 2025

Húsið málað að utan 2023/4

Eldhús í kjallaraíbúð endurnýjað í kringum 2020

Þak var yfirfarið fyrir u.þ.b.15 árum og soðinn á það nýr þakpappi.

Hér er á ferðinni eign þar sem margt er enn upprunalegt eða komið til ára sinna en eigninni hefur ávallt verið vel við haldið og vel um hana gengið.

Vel staðsett eign á vinsælum stað í Vesturbæ Kópavogs.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is og Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

Kort af Hlégerði 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52