HÚSASJÁ

Hjallabrekka 28

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

180 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1968

Byggingarár

636 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur

Auka íbúð



15 dagar á sölu

sell

144.900.000 kr

805.000 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Um er ræða virkilega fallegt og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum við Hjallabrekku 28 í Kópavoginum. Húsið er steinsteypt, byggt árið 1968, samtals 180 fm þar af 32,3 fm bílskúr sem hefur verið breytt í stórt gesta eða hobby herbergi. Húsið býður upp á mikla möguleika t.d er mjög auðvelt að nýta neðri hæðina sem sér íbúð. Fyrir um fjórum árum var þakið endurnýjað ásamt pípulögnum. Í kjallara var drenað á austurhlið hússins við nýtt baðherbergi sem er flísalagt hólf í golf. Nýleg gólfefni eru á neðri hæð ásamt nýrri innréttingu í þvottahúsi.  Baðherbergið á efri hæðinni var endurnýjað fyrir nokkrum árum.

Nánari lýsing eignar: Komið er inn á forstofugang efri hæðar, fataskápur. Frá forstofugangur tekur við gangur / hol. Á hægri hönd er eldhús með fallegri innréttingu, borðkrók og glugga. Björt og rúmgóð parketlögð stofa með útgangi út á hellulagða verönd og þaðan út í garð þar sem er heitur pottur. Frá gangi / holi er gengið upp á efri pall. Parketlagður svefnherbergisgangur með þakglugga sem gefur góða birtu inn í rýmið. Þar eru þrjú svefnherbergi og eru þau öll með fataskáp. Flísalagt endurnýjað baðherbergi í hólf og gólf, baðkar, handklæðaofn, upphengt salerni, hiti í gólfi og gluggi. Frá stofu er unnt að ganga niður í kjallarann sem skiptist í opið rými, baðherbergi með flísum og sturtu, neðri skáp, hiti í gólfi. Innaf opna rýminu er þvottahús með innréttingu og glugga, inngangur er inn í þetta rými. Bílskúrinn er opinn sem væri hægt að nýta sem stórt herbergi, inngangur er einnig inn í þetta rými. Góð geymsla innaf. Gólfefni: parket og flísar að mestu á gólfum.

Þetta er virkilega góð og falleg eign með aukaíbúð á frábærum stað í Kópavoginum þar sem stutt er í stofnbrautir og alla helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is

Umsagnir viðskiptavina HÉR

Fylgdu mér á Facebook

Fylgdu mér á Instagram

Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Hjallabrekka 28

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29
Hjallabrekka 28, 01-0101 | Húsasjá