Hjallabrekka 18
01-0101 · 200 Kópavogi



57 dagar á sölu
127.900.000 kr
679.596 kr/m²
Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna til sölu vel staðsett einbýlishús með innbyggðum bílskúr á besta stað í Kópavogi. Húsið er steinsteypt, byggt árið 1969 samtals 188,2 fm þar af 28,7 fm bílskúr. Eignin samanstendur af forstofu, forstofuherbergi, holi, stofu, borðstofu, eldhúsi, 4x svefnherbergi, baðherbergi. Á neðri hæð er þvottahús, geymsla og bílskúr. Tveir inngangar eru í húsið.
Nánari lýsing:
Anddyri er teppalagt og með fatahengi. Inn af anddyri er ófrágengið rými með opnanlegum glugga, gæti nýst sem gestasnyrting.
Hol tengir saman stofur og svefnherbergisgang. Teppi á gólfum. Útgengt út í garð.
Stofa/borðstofa úr holi er gengið upp nokkrar tröppur í stofur og eldhús. Stofa/borðstofa rúmgóð og björt, teppi á gólfi.
Eldhús er mjög rúmgott með góðum borðkrók, tveir góðir gluggar, eldri viðarinnrétting, helluborð, vifta, bakaraofn. Dúkur á gólfi.
Svefnherbergi I er inn af forstofu. Teppalagt.
Svefnherbergi II hjónaherbergi. Rúmgott með miklu skápaplássi, parket á gólfi.
Svefnherbergi III ágætt herbergi, fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi IV ágætt herbergi, fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari, hvít nett innrétting með handlaug, speglaskápur. Flísar á gólfi og stórum hluta veggja. Opnanlegur gluggi.
Þvottahús er á neðri hæð, rúmgott og með sturtuaðstöðu. Opnanlegur gluggi. Í sama rými er búnaður fyrir lofthitun staðsettur.
Geymsla er á neðri hæð, innangengt í bílskúr.
Bílskúr er mjög rúmgóður með fjórum góðum gluggum. Málað gólf.
Garður er skjólgóður, með trjágróðri. Að framanverðu hellulagður gangstígur og steypt plan framan við bílskúr.
Eignin hefur fengið ágætis viðhald að utan m.a nýtt þak, múviðgert og málað. Viðhald síðustu ára er eftirfarandi:
2015 Nýtt inntak fyrir heitt og kalt vatn.
2016 ca Húsið sprunguviðgert og málað.
2017 Nýtt þak, skipt um þakjárn, þakpappa, tréverk yfirfarið og skipt um það sem þurfti, nýjar þakrennur.
2018 ca. Nýr skólpbrunnur.
2018 ca. Lofthitunarbúnaður endurnýjaður ásamt blásara.
2024 Ný handlaug og skápur á baðherbergi.
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum og hefur ekki haft afnot af henni. Því leggur seljandi ríka áherslu á að árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir fasteignasali allan aðgang til þess. Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is / 8994703.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna







































