HÚSASJÁ

Heiðarhjalli 25

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
51 myndir

137 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1993

Byggingarár

1441 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



14 dagar á sölu

sell

109.900.000 kr

803.950 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir í sölu afar fallega og mikið endurnýjaða neðri sérhæð í fjórbýli með sérinngangi og frábæru útsýni, ásamt afgirtum sólpalli og bílskúr við Heiðarhjalla 25 í suðurhlíðum Kópavogs. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum og skipulagi hennar verið breytt mikið ásamt að húsið hefur fengið reglulegt viðhald. Fasteignin er skráð alls 136,7 m2 og skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, hjónaherbergi, stofu, baðherbergi og tvö barnaherbergi. Útgangur er á rúmgóðan afgirtan sólpall með heitum potti. Eigninni fylgir bílskúr, sem er 27 m2. Mjög fallegt útsýni er frá eigninni. Frábær staðsetning með stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu, auk útivistar og hreyfingar með ýmsum göngu og hjóla leiðum um Kópavogsdalinn.

Hafið samband við Aðalstein Bjarna lgf. í síma 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is fyrir allr nánari upplýsingar og varðandi skoðun.

Nánari lýsing og skipting á eignarhlutum:

Forstofa er með flísum á gólfi og vönduðum fataskáp.

Eldhús og borðstofa eru í sama rými. Eldhús með stílhreinni U-laga innréttingu sem er hvítlökkuð með glansáferð og steyptri borðplötu. Ofn í vinnuhæð og gashelluborð ásamt innfelldri uppþvottavél og ísskáp. Neðri skúffur og efri skápar.

Borðstofa er með glæsilegan gólfsíðan hornglugga þar sem óheft útsýnið nær til fjallana í fjarska. Fallegar sérsniðnar gardínur. Rúmar auðveldlega stórt borð fyrir veislur.

Hjónaherbergi (1) er nálægt forstofu með gólfsíðum glugga og vönduðum fataskápum.

Baðherbergi og þvottaherbergi eru í sama rými en aðgreint með vegg. Baðherbergi er með fallega stílhreina innréttingu og mjög stóran spegil , ásamt að gólfsturta er stór með innbyggðum tækjum og skilrúmi úr hertu gleri. Salernið er vegghengt og herbergið flíslagt hátt og lágt, með hvítum flísum á veggjum og gráleitum flísum á gólfi.

Þvottaherbergi er inn af baðherbergi með sömu flísum á gólfi og stílhreinum hvítum skápum og skuffum. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Stofa er rúmgóð og rúmar vel stóran sófa og stórt sjónvarp, staðsett í miðri íbúðinni.

Barnaherbergi (2) með glugga, stórum fataskáp og parket á gólfi.

Barnaherbergi (3) með gólfsíðum glugga, fataskáp og parket á gólfi.

Sólpallur er til suðurs og vesturs og gengið er út á hann um nýlegar tvöfalldar dyr. Á pallinum er lítill geymsluskúr og heitur pottur. Pallur er allur afgirtur.

Bílskúr er sérlega snyrtilegur með góðu skápaplássi, nýlega máluðu gólfi með epoxi, ásamt nýlegri bílskúrshurð með sjálfvirkri opnun.

Lóð er öll hin snyrtilegasta og er snjóbræðsla í gangstétt við hús og niður brekkuna að bílskúrunum. Hægt er að keyra bíla upp brekkuna til að ferma og flytja hluti.

Gólfefni íbúðar er vandað harðparket frá Birgisson á öllum rýmum fyrir utan baðherbergi og forstofu, en þar eru flísar. Í bílskúr er epoxy málning á gólfi.

Íbúðin er neðri sérhæð af tveimur í Heiðarhjalla 25 og að auki eru tvær íbúðir í sama húsi sem teljast til Heiðarhjalla 27. Fallegur og gróinn garður fylgir eigninni á sameiginlegri lóð. Húsið sem er byggt árið 1993 er steinsteypt tveggja hæða fjórbýlishús með bílskúra lengju.  Bílskúrar sem fylgja íbúðunum eru sérstæðir við bílaplan á lóðinni og er einkabílastæði fyrir framan hvern þeirra.

Um framkvæmdir undanfarin ár skv. seljanda:

2010:  Gólfhiti settur á alla íbúðina og gólf flotað. // Eldhús fært og innrétting endurnýjuð að hluta. Hluti innréttingar eru grunnskápar sem fyrir voru. // Loft tekin niður og innfelld lýsing sett. // Rafmagnstaflan endurnýjuð ásamt raflögnum að öllum hluta nema í stærra barnaherbergi. // Fataskápar endurnýjaðir.

2011:  Gamall pallur rifinn og nýr lagður. // Lagnir fyrir heitan pott.

2014:  Baðherbergi endurnýjað. // Lagnir í bílskúr endurnýjaðar og nýr ofn settur.

2016:  Heitur pottur settur.

2018:  Nýtt parket sett á íbúð (Birgisson) // Innihurðar endurnýjaðar (svört eik)

2019:  Skipt um útidyrahurð og dyrakarm (skipt um allan frontinn)

2020:  Epoxy sett á bílskúrsgólf og settir upp skápar. Vaskur settur í innréttingu en ekki blöndunartæki. (heitt og kalt vatn í skúr). // Ný bílskúrshurð.

2021:  Þakkantur á húsinu endurnýjaður.

2023:  Húsið allt málað og þak einnig málað í leiðinni.

2025:  Skipt um alla glugga, gler og ný tvöföld svalahurð.

Allar nánari upplýsingar veita:

Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.856-5858 / margret@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Heiðarhjalli 25

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51