HÚSASJÁ

Hamraborg 34

12-0102 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

77 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1979

Byggingarár

10565 m²

Lóð

Svalir

Geymsla



16 dagar á sölu

sell

69.000.000 kr

897.269 kr/m²

Novum fasteignasala kynnir eignina Hamraborg 34, 200 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 206-1379.

Glæsileg, mikið endurnýjuð 76,9 fm íbúð á 1. hæð með stórum og skjólgóðum suður svölum, endurbætur fóru fram á íbúðinni 2023-2024.

Íbúðin skiptist í forstofu og hol, eldhús, stóra og bjarta stofu með útgengi á svalir, tvö góð svefnherbergi og flísalagt baðherbergi.

Húsið lítur vel út að utan og sameign snyrtileg. Bílahús er við Hamraborg og þar geta íbúar lagt endurgjaldslaust, innangengt er í bílakjallara ásamt því að leið liggur úr bílahúsi upp á lóðina við inngang hússins.

Nánari upplýsingar veitir Telma Sif, lögmaður og lgf. í síma 773-7223.

Nánari lýsing:

Forstofa með góðum fataskápum og harðparket á gólfi.

Eldhús er með nýlegri hvítri innréttingu með góðu skápaplássi, flísar milli skápa og vönduð eldhústæki, gólf er flísalagt.

Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með útgengi á stórar suður svalir, harðparket á gólfi.

Baðherbergi er nýlega endurnýjað og mjög vandað flísalagt í hólf og gólf, stór flísalagður sturtuklefi með glervegg og óbein lýsing í lofti, hvít innrétting og tengi fyrir þvottavél.

Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum og harðparket á gólfi.

Barnaherbergi er rúmgott með fataskápum og harðparket á gólfi.

Geymsla er í sameign auk sameignlegrar vagna og hjólageymslu.

Bílahús er við Hamraborg og leggja íbúðareigendur endurgjaldslaust í bílastæðin. Innangengt er í bílahúsið úr stigahúsi.

Mjög snyrtileg og góð eign þar sem örstutt er í alla þjónustu og skóla.

Nánari upplýsingar veitir Telma Sif Reynisdóttir Lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 7737223, tölvupóstur telma@novum.is.

Kort af Hamraborg 34

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24