HÚSASJÁ

Furuhjalli 4

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
48 myndir

262 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1989

Byggingarár

580 m²

Lóð

Svalir

Þvottahús

Auka íbúð



101 dagar á sölu

sell

184.900.000 kr

705.725 kr/m²

Domusnova og Ingunn Björg kynna reisulegt og fallegt einbýlishús á tveimur hæðum í suðurhlíðum Kópavogs. Aukaíbúð með sérinngangi er á jarðhæð hússins. Hátt er til lofts í stofu og útgengt á mjög rúmgóðar svalir sem snúa til suðurs.

Skipulagi hússins hefur verið breytt en á upprunalegu teikningum var herbergi þar sem nú er eldhús í aukaíbúð. Auðvelt er að breyta eigninni aftur skv. upprunalegri teikningu.

Frábær staðsetning þar sem stutt er i útivistarsvæði Kópavogsdals, skóla, leikskóla, Smáralind, heilsugæslu og aðra þjónustu.

Skv. HMS er húsið skráð 262 fm2, þar af er íbúðarrými 218 fm2 og bílskúr 43,9 fm2.

Nánari upplýsingar veitir:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is

Efri hæð:

Stofa / borðstofa: Opin og björt með aukinni lofhæð. Útgengi á svalir sem snúa til suðurs.

Svalir: Mjög rúmgóðar ( ca. 20 fm ) svalir ofan á bílskúr. Fallegt útsýni yfir Kópavogsdalinn.

Eldhús: Eikarinnrétting, góður borðkrókur, flísar á gólfi.

Þvottahús / búr: Inn af eldhúsi, útgengt á lóð fyrir aftan hús.

Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp. Harðparket á gólfi.

Barnaherbergi: Harðparket á gólfi, fataskápur.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð Innrétting, sturta, hornbaðkar.

Neðri hæð:

Andyri: Mjög rúmgott, flísalagt gólf, góður fataskápur.

Stigi: fallegur bogadregin stigi með teppi á þrepum liggur upp á efri hæðina.

Aukaíbúð:

Sérinngangur er inn í íbúðina á austurhlið hússins.

Forstofa: Flísar á gólfi, rúmgóður skápur með rennihuðum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara sem hægt er að loka af með rennihurð.

Eldhús: Nýleg rúmgóð innrétting, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppvottavél, gluggar á tvo vegu, harðparket á gólfi.

Stofa: Harðparket á gólfi.

Herbergi: Mjög rúmgott harðparket á gólfi.

Baðherbergi: Flisalagt gólf og veggir að hluta, innrétting undir vaski, sturta, gluggar með opnanlegu fagi.

Bílskúr: Sérlega rúmgóður 43,9 fm2 með góðri lofthæð, rafdrifin bílskúrshurð, gönghurð, tveir mjög stórir gluggar á vesturvegg. Hellulög innkeyrsla með hitalögn, pláss fyrir 3 bíla.

Lóð: Fallega gróin lóð með hellulögn fyrir framan inngang húss og á á austurhlið fyrir framan inngang í aukaíbúð, hellulögð stétt er einnig að hluta meðfram húsi að aftan, þar er rúmgóður tyrfður garður.

Nánari upplýsingar veita:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Furuhjalli 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð