HÚSASJÁ

Furugrund 74

02-0203 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
12 myndir

53 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1980

Byggingarár

3950 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



39 dagar á sölu

sell

52.900.000 kr

992.495 kr/m²

Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali kynna: Rúmgóð, vel skipulögð og töluvert endurnýjuð 53,3 fm tveggja herbergja íbúð á annarri hæð við Furugrund 74, 200 Kópavogi. Eignin er í jaðri göngu- og útvistarsvæðis Fossvogsdals.

Nánari lýsing:

Komið er inn frá sameign í rúmgott hol með fatahengi á vinstri hönd, möguleiki að setja fataskáp í stað fatahengis. Á hægri hönd frá holi er eldhús með hvítri eldhúsinnréttingu ásamt tækjum og innbyggðri uppþvottavél. Svefnherbergið er með opnum nýlegum fataskáp. Baðherbergið er með ljósri eldri innréttingu, baðkar með sturtu og flísar á gólfi. Rúmgóð og björt stofa / borðstofa með útgengi út á góðar suður svalir. Á gólfum eignar er harðparket nema á baðherbergi, þar eru flísar. Eigninni fylgir sér geymsla í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu.

Eldhúsinnrétting var endurnýjuð 2019 ásamt gólfefnum og rafkerfi var yfirfarið að hluta. Um er að ræða vel staðsetta eign í næsta nágrenni við göngu- og útivistarsvæði í Fossvogsdal.

Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangið pall@fasteignasalan.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt (en þó breytilegt) 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Kort af Furugrund 74

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð