HÚSASJÁ

Furugrund 62

01-0102 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

131 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1975

Byggingarár

1082 m²

Lóð

Garður

Geymsla



7 dagar á sölu

sell

97.900.000 kr

749.617 kr/m²

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Furugrund 62, fallega og bjarta hæð í fjögurra íbúða húsi á þessum visnæla stað í Kópavogi. Fossvogsdalurinn í göngufæri og stutt í alla þjónustu , skóla og leikskóla. Herbergi í kjallara hefur verið í útleigu og er skráð 20,6 fm, með baðherbergi. Hægt að hafa góðar leigutekjur af herberginu.

Íbúðin er skráð 130,6 fm hjá HMS og er þar af íbúðarherbergi í kjallara alls 20,6 fm.

Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson löggiltur faseignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is.

Nánari lýsing eignar:

Komið er inn á flísalagt anddyri með fatahengi.

Stofa, borðstofa og sjónvarpsstofa eru í afar rúmgóðu opnu rými með stórum gluggum og góðri birtu. Parket á gólfi.

Eldhúsið er flísalagt með snyrtilegri hvítri innréttingu.

Svefnherbergin eru þrjú, hjónherbergið er með góðu skápaplássi, parket á gólfi. Út úr hjónaherberginu eru gengið út á stórar og rúmgóðar svalir sem snúa í suður. Svalirnar hafa verið stækkaðar talsvert.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuklefa. Inná baherberginu er krókur með lokaðri hurð með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla er í sameign í kjallara ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Íbúðarherbergi er í kjallara með baðherbergi með sturtu. Hægt er að koma fyrir eldhúskrók í herberginu.

Sérmerkt bílastæði fyrir tvo bíla fyrir framan húsið.

Hér er afar skemmtileg og rúmgóð eign á ferðinni með möguleika á góðum leigutekjum fyrir herbergið í kjallaranum. stutt er í alla þjónustu, skóla og leiksóla og út á stofnbrautir. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is. Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Furugrund 62

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð