HÚSASJÁ

Furugrund 46

01-0203 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

85 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1974

Byggingarár

780 m²

Lóð

Garður

Svalir

Þvottahús



141 dagar á sölu

sell

72.500.000 kr

851.939 kr/m²

MIKIÐ ENDURNÝJUÐ 4RA HERBERGJA 85,1 FM ÍBÚÐ Í FURUGRUND KÓPAVOGI MEÐ ÚTLEIGUHERBERGI Í KJALLARA.

Valhöll fasteignasala Síðumúla 27, Sími: 588-4477 og Snorri Snorrason.  Lg.fs.  Sími: 895-2115 -  snorri@valholl.is, kynna til sölu, 4 herbergja 85,1 fm mikið endurnýjaða og endurskipulagða íbúð í hjarta Kópavogs.

Eignin hefur verið breytt frá upphaflegum teikningum og er þess virði að skoða. Í íbúðinni eru nú 2 mjög rúmgóð herbergi, eldhús opið við stofu og í kjallara er 9,7 m² herbergi, sem er með sameiginlegum aðgangi að salerni og hefur verið nýtt til útleigu.

Eignaskipan:

Forstofa og gangur: Parket á gólfi

Stofa: Mjög rúmgóð með parketi á gólfi og útgengt á stórar suður svalir.

Eldhús:  Eldhús er opið við stofu og  var endurnýjað í nóvember 2018, með nýrri innréttingu, vaski, eldavél, tengi fyrir uppþvottavél, og parket á gólfi. Uppþvottavél, ísskápur og vínkælir fylgir með en án ábyrgðar um ástand.

Svefnherbergi I: Hjónaherbergi, parket á gólfi

Svefnherbergi II: Herbergi, parket á gólfi og fataskápur

Svefnherbergi III: Herbergi í kjallara, parket á gólfi, aðgengi að sameiginlegu baði í kjallara.

Baðherbergi: Endurnýjað árið 2017, flísalagt í hólf og gólf, með baðkari og sturtu, vaskaskáp og salerni. Rými fyrir þvottavél og þurrkara.

Sameign:

Sérgeymsla í kjallara, sameiginlegt þvottahús, og hjóla/vagnageymsla.

Lýsing á umhverfi:

Íbúðin er staðsett í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir og aðra helstu þjónustu.

Skv eignaskiptasamningi fyrir Furugrund 46 er íbúðin 17,15% af húsinu nr 46 en hvert húsnúmer í húsinu Furugrund 46 til 54 er með sjálfstætt húsfélag.

Lóðar- og bílastæðisfélag Furugrund 40 -54 er starfandi og er þar fjögra manna stjórn. Greitt er kr. 1.000 á mánuði fyrir hverja íbúð á mánuði fyrir viðhald og snjómokstur.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Furugrund 46

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð