HÚSASJÁ

Fífuhjalli 13

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
76 myndir

201 m²

Stærð

2

Herbergi

4

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1990

Byggingarár

582 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Þvottahús

Heitur pottur

Auka íbúð



253 dagar á sölu

sell

227.000.000 kr

804.394 kr/m²

Opið hús fimmtudaginn 5. febrúar frá kl 16:30 til 17:15 - Fífuhjalli 13, 200 Kópavogur

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Afar glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum með fallegu útsýni við Fífuhjalla í suðurhlíðum Kópavogs. Fallegur og skjólgóður suðurgarður með heitum potti.

Húsið er skráð 282,2 fm, þar af er mjög góð 2ja herbergja 81,2 fm aukaíbúð/séríbúð í hluta neðri hæðar sem er með sérinngangi.

Arkitekt hússins er Guðfinna Thordarson.

Eignin er á tveimur fastanúmerum.

Aðaleignin er á tveimur hæðum og er alls 201 fm. 3-4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, 2 stofur, eldhús, þvottahús og bílskúr.

Stærri eignarhlutinn er einnig auglýstur til sölu sérstaklega.  Auglýsing á stærri eignarhlutann – SMELLTU HÉR

Hér getur þú skoðað eignina í þrívídd – SMELLTU HÉR

Íbúðin á neðri hæðinni er 81,2 fm með sérinngangi, einu svefnherbergi, baðherbergi, þvottahúsi, stofu og eldhúsi.

Hér getur þú skoðað auka íbúð í þrívídd – SMELLTU HÉR

Mjög einfalt mál væri að sameina eignarhlutana og nýta húsið allt í einu lagi.

Bókið skoðun: Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali í síma 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is eða Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Nánari lýsing.

Falleg aðkoma er að húsinu. Steypt, munstrað plan með bílastæðum fyrir þrjá bíla.

Efri hæð:

Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápar.

Stofur: Stórar og bjartar stofur, flísar á gólfi, verulega aukin lofthæð. Gólfsíðir gluggar sem ná á milli hæðanna setja mikinn og fallegan svip á húsið. Úr borðstofu er útgengt á skjólgóðar og sólríkar suðursvalir sem snúa inn í garðinn.

Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi, parket á gólfi, góðir skápar, aukin lofthæð.

Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, flísalögð sturta með glerhlið sem gengið er slétt inní, upphengt salerni, gluggi.

Eldhúsið: Flísar á gólfi, opið við stofur, hvít innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, gluggi, granít á borðum og stór eyja sem unnt er að sitja við.

Þvottahúsið: Mjög rúmgott, flísar á gólfi, vegleg innrétting með miklu skápaplássi (efri og neðri skápar), tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur, gluggi. Innangengt er úr þvottahúsi inn í bílskúrinn.

Bílskúr: Flísar á gólfi, geymsluloft yfir hluta skúrsins, hiti, rafmagn og rennandi vatn. Búið er að stúka af hluta skúrsins og nýta sem skrifstofu/vinnnuaðstöðu, flísar á gólfi og gluggar í tvær áttir.

Neðri hæð:

Sjónvarpshol: Flísar á gólfi, væri hægt að stúka af og nýta sem svefnherbergi.

Tvö góð svefnherbergi: parket á gólfum í báðum herbergjum, fataskápur í öðru.

Á gangi framan við herbergin eru einnig fataskápar.

Baðherbergi: Endurnýjað fyrir fáeinum árum, flísar á veggjum og gólfi, baðkar með flísalagðri hlið, sturtutæki einnig við baðkarið,  hvít innrétting undir vaski, upphengt salerni.

Við stigann á milli hæðanna er útgengt í garðinn sunnan við húsið. Garðurinn er mikill sælureitur, gróinn og vel hirtur með pöllum að hluta og heitum potti.

Aukaíbúð/séríbúð á neðri hæð:

Björt og falleg 81,2 fm íbúð með sérinngangi neðan/sunnan við húsið.

Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur.

Setustofa: Rúmgóð og björt með stórum gluggum, flísar á gólfi.

Eldhús: Viðarinnrétting með góðu skápa og vinnuplássi, flísar á gólfi, borðkrókur, gluggi. Borðstofa er opin. við eldhús, flísar á gólfi.

Svefnherbergi: Flísar á gólfi, fataskápur.

Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, flísalögð sturta, innrétting undir vaski.

Þvottahús: Flísar á gólfi, tengi fyrir vélar, hvít innrétting með góðu skápaplássi, skolvaskur.

Í dag er lokað á milli þessara tveggja eignarhluta en unnt væri að opna aftur á milli og nýta allt húsið fyrir eina fjölskyldu.

Garðurinn er mjög fallegur með tveimur timburpöllum og heitum potti (hitaveituskel). Góður geymsluskúr er einnig á lóðinni.

Lóðin er með timpurpöllum að hluta og tyrfð að hluta.

Snjalllýsing er í húsinu (nema í aukaíbúðinni á jarðhæð)

Búið er að leggja þriggja fasa rafmagn og setja upp rafhleðslustöð í bílskúrnum.

Húsið að utanverðu (múr og tréverk) var málað árið 2021

Þakjárn hússins var yfirfarið og málað árið 2021

Glæsileg eign á eftirsóttum og veðursælum stað. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu. Einnig stutt í allar helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu ingibjorg@hibyli.is

Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is

Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Kort af Fífuhjalli 13

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55Mynd 56Mynd 57Mynd 58Mynd 59Mynd 60Mynd 61Mynd 62Mynd 63Mynd 64Mynd 65Mynd 66Mynd 67Mynd 68Mynd 69Mynd 70Mynd 71Mynd 72Mynd 73Mynd 74Mynd 75Mynd 76