HÚSASJÁ

Fagrihjalli 60

10-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
57 myndir

194 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1991

Byggingarár

2746 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



152 dagar á sölu

sell

145.000.000 kr

747.038 kr/m²

LANDMARK kynnir:  Mjög fallegt 194,1 fm, 5 -6 herbergja parhús á frábærum útsýnisstað í suðurhlíðum Kópavogs. Húsið er á tveimur hæðum með nýlega verönd með heitum potti á efri hæð þar sem eldhús og stofa eru.  3-4 svefnherbergi auk rislofts sem býður upp á ýmsa möguleika. Bæði baðherbergin tekin í gegn fyrir nokkrum árum ásamt eldhúsi og þvottahúsi.

Neðri hæð:

Forstofa er með fallegum flísum á gólfi og miklu skápaplássi

Svefnherbergin eru þrjú á hæðinni, öll með parketi.  Góður fataskápur er í hjónaherbergi.

Baðherbergið er nýlega endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf með hornbaðkari, handklæðaofni og fallegri innréttingu.

Þvottahús er á hæðinni með innréttingu þar sem tækið eru í góðri vinnuhæð.

Gengið upp teppalagðan stiga upp á 2. hæð.

Efri hæð:

Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu rými með aukinni lofthæð með fallegu útsýni til suðvesturs

Eldhúsið er með dökkbæsaðri innréttingu með eyju.  Í innréttingu eru tveir ofnar ( annar combi-ofn) helluborð og innbyggð uppþvottavél og ísskápur.

Borðstofa og setustofa eru samliggjandi og þaðan er útgengt út á verönd með góðum skjólvegg og heitum potti.  Innangengt í bakgarð af verönd, tilvalin fyrir hunda t.d.

Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, "walk-in" sturtu og upphengdu salerni.

Önnur stofan er á hæðinni með parketi á gólfi og rúmgott vinnurými.  Þarna er möguleiki að setja upp eitt herbergi eða tvö.

Risloft - 11 fm er í húsinu, en það er hægt að innrétta á marga vegu, t.d. sjónvarpsrými, vinnuherbergi eða svefnherbergi.  Opnanlegur þakgluggi.

Bílskúrinn er rúmgóður ( 36,8 fm ) með lokaðri geymslu.  Í bílskúrnum er rafmagn, hiti, vatn og rafknúinn hurðaopnari.  Tvö bílastæði framan við hús og gestabílastæði við hús nr 58.  Hiti er undir bílaplani.

Umhverfi: Leikvellir fyrir krakka eru í götunni og stutt er í leikskóla, grunnskóla og íþróttaaðstöðu.  Staðsetning mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.

Í eldri sölulýsingu segir að "þak hafi verið yfirfarið árið 2020 þar sem skipt var um þakjárn, pappa og járn í þakkanti. "

Greiddar eru 1.000 kr á mánuði í lóðafélag Fagrahjalla 42-60

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is

---------------------------------------------------------Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Fagrihjalli 60

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð