HÚSASJÁ

Fagrihjalli 3

01-0201 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

173 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1989

Byggingarár

644 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



636 dagar á sölu

sell

179.900.000 kr

771.441 kr/m²

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Fallegt einbýlishús með aukaíbúð og góðum bílskúr í suðurhlíðum Kópavogs.

Eignin er tóm, fasteignasali með lykla og afhending á eigninni getur verið við kaupsamning.

** BÓKIÐ SKOÐUN **

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@domusnova.is

Einnig mögulegt að kaupa bara efri hæðina og bílskúrinn, nánari upplýsingar hjá faseignasala.

* Mjög gott einbýlishús með aukaíbúð við Fagrihjalli 3, 200 Kópavogi.

* Eignin er skráð á tvö fastanúmer, eitt fyrir hvora íbúð F206-0281 og F222-4795.

* Birt stærð heildareignarinnar skv  HMS er 233,2fm., þar af bílskúr 27,0fm. og aukaíbúð á neðri hæð 60,5fm.

* Aðalíbúðin samanstendur af forstofu, opnu eldhúsi, stofu, borðstofu, þremur svefnherbergjum, gestasnyrtingu, baðherbergi, þvottaherbergi og geymsla, ásamt innbyggðum bílskúr.

* Aukaíbúðin er uppgerð að öllu leyti með sérinngangi og skiptist m.a. í forstofa, opið eldhús við stofu/borðstofu með útgengi út í garð með sólpalli, svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.

Mjög fallegur og gróinn garður sem snýr til suðurs með sólpalli við aukaíbúð, stórar svalir á aðalíbúð með fallegu útsýni til suðurs.  Rúmgott bílastæði við húsið.

Nánari lýsing - Aðalíbúð:

íbúðin er á 2 hæðum, 172,7fm, mjög hátt til lofts í stofu og borðstofu.

Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp.

Stofa og borðstofa samliggjandi í lopnu rými með útgengi á stórar suður svalir.  Mikið útsýni til suðurs og til sjávar.

Eldhús mjög rúmgott og með góðum innréttingum og tækjum.  Gluggi í eldhúsi.

Gestasnyrting flísalögð og með glugga.

Svefnherbergin eru þrjú og öll rúmgóð með skápum.  Parket á gólfum.

Baðherbergið er flísalagt, með snyrtilegri innréttingu.  Gluggi á baði.

Þvottahús er rúmgott og flísalagt.

Garður í suður.

Stór bílskúr 27fm með heitu/köldu vatni, rafmagni, niðurfalli, sér inngönguhurð, stórum glugga með flottu suður útsýni alveg út á sjó og ekki innangengur frá húsi.

Aukaíbúð á sér fastanúmeri:

Uppgerð 2ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýli í suðurhlíðum Kópavogs. Parket og flísar á gólfum. Sérinngangur, sólpallur, suðurgarður, einkabílastæði.

Íbúðin var endurnýjuð á fallegan og vandaðan máta þar sem allt var endurnýjað, t.a.m. nýtt eldhús, nýtt baðherbergi, ný gólfefni, nýjar hurðir, tenglar, rofar, ljós, gardínur, ofl.

Útsýni úr gluggum til suðurs út á fallegan suðurgarðinn.

Sólpallur fyrir framan íbúð. Garðurinn er sameiginlegur.

Sérmerkt einkabílastæði fylgir íbúðinni.

Gengið er af götuhæð niður steyptan stiga meðfram húsi, og á neðri hæðinni er sér inngangur fyrir íbúðina og stór garður sem snýr í suður.

Nánari lýsing - aukaíbúð:

Forstofa: Forstofan er flísalögð

Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með gólfhita, handklæðaofni, upphengdu salerni, og flísalagðri sturtu.

Geymsla/þvottaherbergi: Flísalagt rými, tengi fyrir þvottavél/þurrkara.

Svefnherbergi: parketlagt svefnherbergi, innsmíðaður fataskápur, gluggi í suður.

Stofa: parketlögð, gluggar á tvær hliðar er snúa í suður og vestur, sameiginlegt rými með eldhúsi

Eldhús: flísar lagðar meðfram eldhúsinnréttingu, eitt rými með stofu. Falleg eldhúsinnrétting og öll tæki, Siemens uppþvottavél, innbygður örbylgjuofn.

Nánari upplýsingar veita:

Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899 0720 / hrannar@domusnova.is

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Fagrihjalli 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu