HÚSASJÁ

Fagrabrekka 25

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

125 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1962

Byggingarár

1295 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



17 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

678.115 kr/m²

Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna vel skipulagða, bjarta og fallega íbúð á 1. hæð í 5 íbúða húsi.

Stór stofa og borðstofa með útengt út á suðursvalir.

Í kjallara er 18.8 fm. íbúðarherbergi þar sem hægt væri að útbúa baðherbergi þar sem lagnir eru til staðar.

Mjög stutt í alla verslun og þjónustu sem og leikskóla og skóla.

Eignin skiptist í eldhús, borðstofu og stofu, baðherbergi, 3 svefnherbergi. Í kjallara er íbúðarherbergi, sameiginlegt þvottahús ásamt sameiginlegu klósetti.

Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.is

Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram

Nánari lýsing:

Anddyrið er með parket á gólfi. Fataskápur á gangi

Eldhúsið er rúmgott með góðri innréttingu og borðkrók. Flísar eru á gólfi og gluggi sem snýr í suður.

Mjög rúmgóð borðstofa og stofa eru samliggjandi með stórum gluggum til suðurs og útgengt út á suðursvalir sem voru endursteyptar árið 2016.

Baðherbergi er flísalagt. Nýleg innrétting og sturtubaðkar Opnanlegur gluggi til vesturs.

Þrjú rúmgóð svefnherbergi með parket á gólfi og gluggum sem snúa til norðursþ

Svalir voru endursteyptar árið 2016. Rúmgóðar með parketflísum og snúa í suður.

Íbúðarherbergi er í kjallara.

Þvottahús er sameiginlegt í kjallara þar sem hver íbúð er með sér þvottavél og snúru.

Árið 2012 voru skólplagnir endurnýjaðar út að brunni.

Árið 2016  voru svalir endursteyptar.

Árið 2019 voru settar upp nýjar eldvarnarhurðir á öllum íbúðum.

Árið 2021 var rafmagn í sameign endurnýjað. Skipt var um rafmagnstöflu og dregið nýtt í sameign og í allar geymslur. Hreyfiskynjari var settur á ljós í stigagangi og birtuskynjari fyrir utan útihurðir.

Kort af Fagrabrekka 25

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu