HÚSASJÁ

Digranesheiði 27

01-0101 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
39 myndir

244 m²

Stærð

7

Herbergi

5

Svefnherbergi

4

Baðherbergi

1970

Byggingarár

645 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Heitur pottur

Auka íbúð



301 dagar á sölu

sell

189.000.000 kr

773.956 kr/m²

Rúmgott og vel viðhaldið einbýlishús á tveimur hæðum, staðsett í suðurhlíðum Kópavogs, með fallegu útsýni. Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, þar á meðal möguleika á aðskildum íbúðareiningum, sem gerir hana hentuga bæði sem fjölskylduhúsnæði og fjárfestingareign. Húsið, sem er byggt árið 1970, er skráð 244,4 m² og skiptist í 113,7 m² efri hæð, 82,2 m² neðri hæð, 29,2 m² bílskúr og 19,1 m² viðbyggingu sem er nær fullbúin sem stúdíóíbúð. Auk þess er um 10 m² óskráð geymsla. Í eigninni eru fjögur baðherbergi með sturtu, þar af þrjú með gólfhita. Útsýnislóðin er stór með steyptum vegg meðfram lóðarmörkum, rúmgóðum palli með heitum potti og stóru bílaplani sem rúmar allt að 9 bifreiðar. Eignin hefur verið vel við haldið og endurbætt á undanförnum árum, þar á meðal með endurnýjun á ofnum, rafmagnstöflu, gluggum og utanhússmálun.

Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.is

Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram

Efri hæð

Aðalhæð eignarinnar sem skiptist í rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, ásamt þremur svefnherbergjum og baðherbergi. Hæðin er 113,7 m².

Anddyri: Snyrtilegt anddyri með flísum á gólfi og góðri aðkomu. Tröppur með snjóbræðslu að hluta leiða upp að anddyrinu.

Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með parketi á gólfi, stórum gluggum sem veita mikið náttúruljós og fallegt útsýni yfir Kópavog. Opið er á milli stofu, borðstofu og eldhúss sem skapar gott flæði.

Eldhús: Eldhús með snyrtilegri viðarinnréttingu (eik) og góðri vinnuaðstöðu. Innbyggður bakaraofn, helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggar veita góða birtu og gott útsýni.

Svefnherbergi I: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og góðum skápum.

Svefnherbergi II: Svefnherbergi með parketi á gólfi og skápum.

Svefnherbergi III: Svefnherbergi með parketi á gólfi, nýtt í dag sem skrifstofa. Stórir gluggar veita gott náttúruljós og útsýni.

Baðherbergi: Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með gólfhita. Er með walk-in sturtu, vegghengdu salerni, innréttingu með vaski og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.

Neðri hæð

Neðri hæð eignarinnar er 82,2 m² og skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérstaka aukaíbúð með sérinngangi. Hún býður upp á mikla sveigjanleika í nýtingu.

Svefnherbergi I: Svefnherbergi með ljósu parketi á gólfi og fataskápum.

Svefnherbergi II: Svefnherbergi með flísum á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi: Baðherbergi með sturtu og ágætu stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og veggjum.

Aukaíbúð með sérinngangi: Innréttuð aukaíbúð með sérinngangi. Í henni er herbergi með ljósu parketi, eldhús með hvítri innréttingu og baðherbergi með sturtu og gólfhita. Rúmgott alrými með stofu og borðstofu.

Hitakompa: Rými fyrir tæknibúnað eða auka geymslu.

Bílskúr

29,2 m² bílskúr sem býður upp á möguleika sem stúdíóíbúð eða vinnuaðstöðu.

Bílskúrsrými: Bílskúrinn er flísalagður og hefur verið innréttaður með nýlegri eldhúsinnréttingu með helluborði, bakaraofni og innbyggðri þvottavél. Hentar vel til útleigu sem stúdíóíbúð.

Baðherbergi bílskúrs: Baðherbergi í bílskúr með sturtu. Flísar á gólfi og veggjum.

Viðbygging og bakhús

Viðbygging sem er nánast fullbúin sem stúdíóíbúð og bakhús með geymslumöguleikum, alls 19,1 m² viðbygging og um 10 m² óskráð geymsla.

Stúdíóíbúð: Viðbygging sem er nær fullbúin sem stúdíóíbúð.

Bakhús og geymsla:

Sérstakt bakhús með geymslu og möguleikum fyrir vinnuaðstöðu.

Lóð og aðkoma

Eigninni fylgir stór útsýnislóð með góðum útisvæðum og bílastæðum.

Framgarður og pallur:

Sér garður með stórum palli og skjólveggjum. Á pallinum er heitur pottur ásamt stórum grasbletti og grillstæði. Frá palli er gott útsýni.

Aðkoma og bílastæði:

Einstaklega stórt bílaplan sem rúmar allt að 9 bifreiðar. Góð aðkoma að húsinu.

Helstu endurbætur og viðhald sem hefur verið framkvæmt á eigninni undanfarið.

Rafmagnstafla endurnýjuð 2005. Ný bílskúrshurð sett upp árið 2006. Skipt hefur verið um 14 af 17 ofnum í húsinu. 5 gluggar á efri hæð hafa verið skipt út. Húsið var nýlega málað að utan (í október) og stofuglugginn endurnýjaður. Eigninni fylgja 9 nýir gluggar sem ætlaðir eru fyrir neðri hæð, norðurhlið og austurgafl.

Athugasemdir: Skipulag eignarinnar er ekki eins og það var upprunalega áætlað. Eignin hefur verið aðlöguð og nýtt á fjölbreyttan hátt. Kaupendum er bent á að skoða eignina ítarlega og hafa þá fyrirvara sem nauðsynlegir eru.

Kort af Digranesheiði 27

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð