HÚSASJÁ

Borgarholtsbraut 49

01-0201 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

80 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1968

Byggingarár

864 m²

Lóð



472 dagar á sölu

sell

69.500.000 kr

872.020 kr/m²

Borgarholtsbraut 49 - Kópavogi

STOFAN FASTEIGNASALA kynnir fallega og bjarta 3 herbergja íbúð í litlu fjölbýli við Borgarholtsbraut 49, Kópavogi.

Eignin hefur verið endurnýjuð að miklu leyti og er skráð samtals 79,7 fm skv. HMS.

Bílskúrsréttur fylgir.

Gengið er inn um sameiginlegan inngang.

Gangur / hol með harðparketi á gólfi.

Stofa / borðstofa er björt með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á svalir.

Eldhús með hvítri innréttingu og eyju með helluborði með innbyggðri viftu, bakarofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp í innréttingu. Tengi fyrir uppþvottavél og pláss er fyrir þvottavél, harðparket á gólfi.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvít innréttin, handlaug og speglaskápur, salerni og baðkar með sturtu.

Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi.

Barnaherbergi með harðparketi á gólfi.

Skv. seljanda:

Endurbætur á íbúðinni áttu sér stað árið 2023 þar sem eldhús var endurnýjað, sett var ný innrétting og tæki og innfelld lýsing í loft.

Dregið var í nýtt rafmagn í íbúð og rafmagnstafla endurnýjuð sem og tenglar og rofar.

Nýtt harðparket og skipt var um innihurðir ásamt því að sett var eldvarnarhurð inn í íbúð.

Skipt var um gler í gluggum og skipt um opnanleg fög.

Árið 2024 var skipt um salerni, handlaug og blöndunartæki í sturtu á baðherbergi.

Þetta er björt og falleg eign þar sem stutt er í skóla, verslanir og stofnæðar.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

Kort af Borgarholtsbraut 49

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu