HÚSASJÁ

Auðbrekka 16

01-0301 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

123 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1967

Byggingarár

461 m²

Lóð

Svalir

Geymsla

Þvottahús



652 dagar á sölu

sell

81.900.000 kr

663.695 kr/m²

Borgir  fasteignasala kynnir eignina Auðbrekka 16, 200 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 03-01, fastanúmer 205-8791 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin er skráð sem 3ja herbergja íbúð. Birt stærð 123.4 fm. - Svalir 5.2fm

Björt og nýtískuleg á efstu hæð á frábærum útsýnisstað í Kópavogi.

Nánari upplýsingar veita

Bjarklind Þór lgf, í síma 6905123, tölvupóstur borgir@borgir.is.

Jóhanna M Jóhannsdóttir lgf, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is

Söluyfrlit

Húsið skiptist í 3 hæðir, verslunarhúsnæði á fyrstu hæð, iðnaðarhúsnæði á annarri hæð og svo íbúðarhúsnæði á þriðju hæð.

Nánari lýsing: Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús

Sameiginlegur inngangur er með fyrstu og annarri hæð en gengið er upp steyptar tröppur á þriðju hæð, fataskápur og fatahengi er á rúmgóðum stigapalli.

Þaðan er svo gengið í íbúðina sem er mjög björt og skemmtileg með dásemdar útsýni yfir fossvogsdal.

Eldhús var sett upp árið 2017, haft opið með skemmtilegu barborði, innréttingu frá Ikea, nýjum tækjum úr Ormsson setrinu og bæði veggir og borðplata úr Mortex. Pláss er fyrir tvöfalldan ísskáp en hugsanlega getur ísskápur fylgt. Tengi er fyrir uppþvottavél. Flott barborð

Rúmgott búr með hillum er við hlið eldhússins en þar er skemmtilega hönnuð old style barn rennihurð

Barborð, borðstofuborð og rennihurð í búr á eldhúsi er í stíl, unnið úr sama viðarefninu.

Hjónaherbergið, er parketlagt og er með góðum fataskáp. útgengt er á suðursvalir úr herberginu

Barnaherbergi er parketlagt, er mjög rúmgott með góðum opnum fataskáp

Stofan er parketlögð mjög rúmgóð, björt og opin með stórkostlegu útsýni yfir fossvoginn.

Baðherbergi og þvottahús er í sameiginlegu rými, endurnýjað 2023  með nýjum flísum í hólf og gólf, stór sturtuklefi með glerhurð, upphengt salerni og ný rúmgóð baðinnrétting, Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Eignin er staðsett í iðnaðarbyggð sem er að breytast í íbúðabyggð.

Göngufæri við Hamraborg, skóla, leikskóla, sundlaug og alla helstu verslun og þjónustu.

Stutt í útivist í Kópavogsdalinn.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Kort af Auðbrekka 16

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30
Auðbrekka 16, 01-0301 | Húsasjá