Klyfjasel 20
01-0101 · 109 Reykjavík



9 dagar á sölu
159.800.000 kr
654.382 kr/m²
Borgir fasteignasala kynnir eignina Klyfjasel 20, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 205-7475 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Klyfjasel 20 er samkvæmt FMR 244.2fm fjölskylduvænt einbýlishús á þremur hæðum sem stendur efst við rólegan botlanga, stórt opið svæði og falleg náttúra fyrir aftan húsið. Möguleiki er á að byggja aukabyggingu á lóðinni.
Búið er að útbúa snyrtilega íbúðaraðstöðu með sér inngangi sem er utan fermetratölu og er því raunstærð nær 270fm. Seljendur skoða skipti á minni eign. Baðherbergi á jarðhæð var tekið í gegn árið 2014 Skipt var um öll gler á miðhæðinni árið 2016Húsið málað að utan 2018Skipt var um gler á jarðhæð 2018-2019Lagnagrind og rafmagn í húsi endurnýjað 2018Ofnar á efri tveim hæðum hússins voru settir upp 2017 og 2018Steypuviðgerðir fóru fram á húsinu 2018 og 2019Eldhústæki, borðplata og vaskur endurnýjað 2018Íbúðaraðstaða á jarðhæð var kláruð í janúar 2019 með nýjum innréttingum og gólfefnum. Einnig skipt um gler 2018-2019Þakið málað 2024
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123,tölvupóstur bjarklind@borgir.is
Nánari lýsing eignar:
Jarðhæð:
Anddyri: Flísalagt með góðum fataskáp.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Með flísum á veggjum og gólfi, handklæðaofni, upphengdu salerni og innangengri sturtu.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi
Tvær rúmgóðar geymslur, stigi með teppi.
Miðhæð:
Stofa/borðstofa: Í björtu og mjög rúmgóðu rými með harð parket á gólfi. Útgengt er á tveimur stöðum, annars vegar á mjög rúmgóðar suðursvalir með nýju handriði og hinsvegar úr stofu út í stóran og fallegan garð.
Eldhús: Þar sem gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp, bakarofni í vinnuhæð og helluborði.
Þvottahús: Er flísalagt með útgengi í garð. Gott skápapláss og vaskur. Flísar á gólfi.
Efsta hæð:
Baðherbergi: Með baðkari, tveimur vöskum, gert er ráð fyrir sturtu.
Svefnherbergi I: Með fjórföldum fataskáp harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Rúmgott með harðparketi á gólfi.
Góður gangur/sjónvarpshol á milli herbergja með harðparketi á gólfi, þar er hægt að ganga út á svalir til norðversturs með fallegur útsýni.
Aukaíbúðaraðstaða með sérinngangi:
Íbúðaraðstaðan á jarðhæð skiptist í stofu og eldhús í opnu rými, svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi.
Hluti íbúðaraðstöðu er ekki innifalin í uppgefinni fermetratölu hússins.
Umhverfi: Stutt er í leikskóla, skóla og verslun. Ósnortin náttúra er aftan við húsið. Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna































