HÚSASJÁ

Jöklasel 25

01-0203 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

101 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1979

Byggingarár

581 m²

Lóð

Svalir

Geymsla

Þvottahús



14 dagar á sölu

sell

74.500.000 kr

732.547 kr/m²

Viltu kynnir rúmgóða og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í 3.hæða fjölbýlishús við Jöklasel 25,109 Reykjavík.

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 101,7fm og er íbúðin 93,6fm ásamt 8,1 fm geymslu.

Skiptist eignin í forstofu, eldhús, þvottahús sem er innaf eldhúsi, stofu/borðstofu og þar er útgengi á rúmgóðar svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Ásamt rúmgóðri geymslu sem er staðsett í sameign.

Stutt í alla helstu þjónustu, leik og grunnskóli í göngufæri.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Allar nánari upplýsingar veita:

Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, elisabet@viltu.is

Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, karolina@viltu.is

NÁNARI LÝSING:

Forstofa: er rúmgóð og parket er á gólfi.

Eldhús: með eikarlitaðri eldhúsinnréttingu og hvítum flísum á milli efri og neðri skápa. Parket er á gólfi.

Stofa/borðstofa: er björt og rúmgóð í einu rými, með útg. á svalir.

Baðherbergi: er með hvítir innréttingu og speglaskáp, baðkari með sturtu. Flísalagt er í hólf og gólf.

Hjónaherbergi: rúmgott og með skápum, dúkur á gólfi.

Barnaherbergi: er bjart með parketi á gólfi.

Þvottahús og búr: er innan íbúðar með hillur og vinnuplássi.

Geymsla: rúmgóð sérgeymsla á jarðhæð innaf sameignarrými, með góðu hilluplássi

Sameign: er snyrtileg með góðri hjóla- og vagnageymsla.

Stigagangurinn er með 7 íbúðum og er hann sambyggður við raðhúsalengju.

Viðhald: Allt húsið, þ.e. veggir, gluggar og þak, var múrviðgert og málað að utan árið 2013. Árið 2016 var sameign í kjallara máluð bæði gólf og veggir. Árið 2018 var skipt um hurðir og sett upp eldvarnarhurðir í öllum íbúðunum. Árið 2022 var skipt um gluggalista að utan á öllum gluggum og einnig þéttiborða í svalahurð og í opnanlegum gluggum einnig hefur glugginn í stofunni verið endurnýjaður.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Kort af Jöklasel 25

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð