Seljabraut 64
02-0101 · 109 Reykjavík



19 dagar á sölu
129.900.000 kr
490.004 kr/m²
Fasteignasala Sævars Þórs kynnir vandað sjö herbergja 265,1 fm raðhús við Seljabraut 64 í Seljahverfi í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, auka herbergi og sér stúdíó íbúð í kjallara. Stæði í bílastæðakjallara fylgir.
Nánari lýsing
Komið er inn í forstofu með dökkum leirflísum. Gestasnyrting er inn af forstofu með eldri innréttingu.
Inn af forstofu tekur við parketlagt hol með panel á veggjum. Úr holinu er gengið í eldhús, stofu og stiga.
Eldhúsið er flísalagt með eldri, rúmgóðri, ljósri eldhúsinnréttingu og góðum borðkrók.
Stofan er rúmgóð og björt og nýtist einnig sem borðstofa. Arinn er í stofunni. Út af stofunni ganga stórar suðursvalir og er gengt af þeim niður í skjólgóðan og stóran bakgarð. Í garðinum er útigeymsla
Stigar upp á efri hæð og niður í kjallara eru með ljósu kókos teppi.
Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi ásamt baðherbergi. Baðherbergið er rúmgott með ljósum flísum og eldri innréttingum úr ljósum við. Í baðherbergi er bæði baðkar og stór innbyggð sturta.
Svefnherbergin á efri hæð eru öll rúmgóð með ljósu parketi á gólfum. Hjónaherbergið er með góðu fataherbergi. Úr hjónaherbergi er einnig útgengt á stórar svalir á efri hæð.
Í kjallara er þvottahús og geymsla en einnig auka herbergi sem nýtt er sem vinnuaðstaða. Í kjallaranum hefur verið innréttuð stúdíó íbúð með eldhúskrók og sér baðherbergi, sem er í útleigu. Möguleiki er á áframhaldandi leigu.
Húsið er mikið til upprunalegt með eldri innréttingum og hefur verið vel viðhaldið í gegnum tíðina en tími er komin á endurbætur. Skipt var um þak fyrir u.þ.b. 10 árum.
Þessi eign er á rólegum stað í rótgrónu hverfi. Stutt er í bæði leik- og grunnskóla sem og matvöruverslanir. Um fjölskylduvænt hverfi er að ræða og stutt t.d. í skíðabrekkuna í Breiðholti.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna












































